Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að orðuband við riddarakross og stórriddarakross orðunnar sé nú hið sama, óháð kyni. Áður höfðu konur borið riddarakross eða stórriddarakross í slaufu en karlar í borða.
Þau sem voru sæmd hinni íslensku fálkaorðu voru eftirfarandi:
Áslaug Geirsdóttir prófessor, Reykjavík, fyrir störf á sviði jarðvísinda og loftslagsrannsókna.
Bjarni Felixson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, Reykjavík, fyrir störf á sviði íþróttamála, félagsmála og miðlunar.
Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur, Reykjavík, fyrir framlag til íslenskra bókmennta.
Haraldur Ingi Þorleifsson frumkvöðull, Reykjavík, fyrir störf á sviði nýsköpunar og samfélagsmála.
Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir menntunarfræðingur, Flateyri, fyrir framlag til menntamála og menningarmála í héraði.
Katrín Fjeldsted heimilislæknir, Reykjavík, fyrir framlag til heilbrigðis- og félagsmála auk starfa í opinbera þágu.
Kristín Þorkelsdóttir hönnuður, Kópavogi, fyrir brautryðjendastörf á sviði hönnunar og framlag til myndlistar.
Ólafía Jakobsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, fyrir störf á sviði landverndar og menningarmála í héraði.
Sigurður Flosason, hljóðfæraleikari og tónskáld, Reykjavík, fyrir framlag til djasstónlistar og störf á vettvangi tónlistarmenntunar.
Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur og prófessor emeritus, Kópavogi, fyrir rannsóknir og þróun á vinnslu sjávarafurða.
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, Reykjavík, fyrir störf í opinbera þágu.
Trausti Valsson, prófessor emeritus, Reykjavík, fyrir framlag til skipulagsfræða og samfélagsumræðu.