Lakkrís getur verið lífshættulegur segir Helga Ágústa Sigurjónsdóttir innkirtlasérfræðingur
„Vandamálið er að lakkrís er settur í svo margar matvörur í dag að fólk áttar sig ekki á því. Flestir læknar gera sér fulla grein fyrir hættunum sem fylgja neyslu lakkrís, hækkun blóðþrýstings og lækkun kalíums í blóði. Lakkrís í miklu magni getur orðið lífshættulegur og það skiptir meira máli í dag þegar hann er kominn í alla skapaða hluti. Drykkir, eftirréttir, mjólkurvörur, annað hvert súkkulaðistykki, hálstöflur, hóstamixtúrur, dökkur bjór, te, allt er þetta til með lakkrísbragði og þannig mætti áfram telja,” segir Helga Ágústa Sigurjónsdóttir innkirtlasérfræðingur sem rannsakað hefur áhrif lakkrís á heilsuna og hefur lengi talað fyrir hættunum af miklu lakkrísáti og það ekki að ástæðulausu. Hún stóð fyrir hádegisfundi á Læknadögum um þetta efni.
„Við höfum fengið nokkur tilfelli inn á gjörgæsludeid Landspítala þar sem
fólk er í mjög krítísku ástandi vegna háþrýstings og breytinga á kalíumgildi
í blóði sem lakkrís hefur hrundið af stað,“
segir Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
innkirtlalæknir.
Ensýmið 11 beta-hydroxysteroid dehydrogenase og hvernig lakkrís
hindrar virkni þess. Mynd Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
„Læknavísindin þekkja tilfelli þar sem lakkrís í dökkum bjór var ástæða innlagnar og einnig eru þekkt tilfelli þar sem lakkrísbragðbætt te var ástæða háþrýstings hjá sjúklingi.
Það vantar töluvert uppá að fólk sé meðvitað um þetta og rannsóknin sem ég gerði er líklega fyrsta skammtaháða rannsóknin á lakkrísneyslu og þar kom greinilega í ljós að skammtarnir skipta máli. Einnig kom glöggt í ljós að þeir sem eru með hækkaðan blóðþrýsting fyrir, hækka miklu meira við að borða lakkrís en aðrir. Það er því enn mikilvægara fyrir fólk að gæta að sér ef það er með hækkaðan blóðþrýsting.“
Hvað er lakkrís?
„Lakkrís er unninn úr jurt sem vex í heitum löndum og það er rótin sem inniheldur lakkríssýruna og gefur lakkrísbragðið. Allt tóbak er litað með lakkríssýru til að fá fallegri brúnan lit á tóbaksblöðin áður en þau eru seld tóbaksframleiðendum. Við vitum ekki hvaða áhrif þetta hefur á reykingafólk en þekkt er sjúkratilfelli vegna tuggutóbaks sem leiddi til háþrýstings.
Lakkríssýran er mjög virkt efni og það er bragðið af henni sem fólk sækist eftir. Það er framleitt gríðarlegt magn af lakkrísrót í heiminum og er selt í böggum til lakkrísframleiðenda. Matvælaframleiðendur/sælgætisframleiðendur kaupa lakkrísrótina þegar búið er að mylja hana í duft og það er reyndar orðið mjög vinsælt í dag að hjúpa alls kyns sælgæti með lakkrísdufti og þá er það gjarnan kallað pipar.
Sem er mjög villandi og auðvitað viljum við læknar að það standi skýrum stöfum utan á umbúðum að lakkrís geti verið hættulegur heilsu fólks en hans sé ekki bara getið í innihaldslýsingunni með örsmáu letri. Einn íslenskur sælgætisframleiðandi lætur koma fram á umbúðum að fólk með háan blóðþrýsting eigi að varast lakkrís. Það er til fyrirmyndar.“
Aðspurð um magnið sem þurfi til að lakkrísát geti haft skaðleg áhrif á heilsuna segir Helga Ágústa að 50 grömm á dag í viku geti verið nóg til að mælanleg áhrif á blóðþrýsting og kalíum komi fram. „Þetta svarar til um það bil einnar lakkrísrúllu á dag. Og margir borða miklu meira en þetta af lakkrís á hverjum degi. Við höfum fengið nokkur tilfelli inn á gjörgæsludeid Landspítala þar sem fólk er í mjög krítísku ástandi vegna lakkrístengds háþrýstings og breytingum á kalíumgildi í blóði.
Kalíumbúskapur blóðsins er mjög viðkvæmur og glugginn sem mannslíkamanum er eðlilegur er þröngur bæði til hækkunar og lækkunar og veldur hjartsláttartruflunum sem geta verið lífshættulegar. Við höfum séð mörg slík tilfelli þar sem lakkrísát er orsökin fyrir alvarlega lækkuðu kalíum í blóði.
Þetta er mjög alvarlegt ástand þar sem ekki er hægt að leiðrétta hjartsláttartruflanirnar fyrr en búið er að leiðrétta kalíumið. Stundum næst þetta ekki og fólk hefur dáið vegna hjartsláttartruflana og mikils kalíumskorts.“
Segja læknar fólki með háan blóðþrýsting að það megi alls ekki borða lakkrís?
„Þeir eiga alla vega að spyrja sjúklinginn að því hvort hann borði mikinn lakkrís því það getur einfaldlega verið orsökin, og þó meðhöndla þurfi blóðþrýstinginn tímabundið er aðalatriðið að hætta neyslu lakkrísins..
Blóðþrýstingurinn getur einfaldlega orðið eðlilegur við það. Ég þekki marga sjúklinga sem hafa verið á mörgum blóðþrýstingslækkandi lyfjum en eftir lakkrísbindindi í þrjá til fjóra mánuði eru þeir lausir við öll lyf og blóðþrýstingurinn orðinn eðlilegur. Það tekur líkamann nefnilega þennan tíma að losa út lakkrísinn. Þetta er góð læknisfræði. Að greina orsökina og með því að fá sjúklinginn til að breyta neysluvenjum sínum munu einkennin hverfa.“
Helga Ágústa segir að lakkrísneysla fólks minni stundum á reykingar eða áfengisneyslu. „Það er tilhneiging hjá fólki að draga úr magninu þegar maður spyr hversu mikinn lakkrís það borðar. Maður þarf stundum að spyrja oft áður en réttar upplýsingar fást. En ástæðan getur líka verið sú að fólk gerir sér ekki grein fyrir magninu því það veit hreinlega ekki að lakkrís er í ísnum, sælgætinu eða teinu. Þess vegna er full ástæða til að vekja fólk til umhugsunar um þetta. Það gildir um þetta eins og margt annað sem er gott, að það er í lagi í litlu magni og með nokkuð löngu millibili.“
Áhrif lakkrís á líkamann
„Lakkrísinn hefur áhrif á tvö ensímkerfi í líkamanum. Hann bælir ensím sem heitir 11beta-HSD (11β-hydroxysteroid dehydrogenasi) og með því hindrar það niðurbrot á virka hormóninu kortisól sem venjulega breytir því í óvirka hormónið kortisón. Með þessu eykst magn kortisóls ekki en helmingunartími þess lengist og þá getur kortisólið sest á saltsteraviðtakana líka, en kortisól er sykursteri, en hefur einnig sömu sækni í viðtaka saltsterahormónsins aldósteróns og þannig virkar lakkrísinn eins og hormónið aldósterón ef magn þess eykst. Saltsteri veldur hækkuðum blóðþrýstingi og skilur út kalíum og safnar á okkur bjúg. Lakkrísát virkar þannig einsog við séum að taka hormón.
Lakkrís bælir líka renin-útsundrun í nýrunum sem tekur þrjá til fjóra mánuði að leiðrétta.“
En hvað varð til þess að Helga Ágústa fékk þennan brennandi áhuga á lakkrís?
„Minn áhugi á áhrifum lakkrís var ung stúlka sem lagðist inn og var orðin svo veik af kalíumskorti að hún gat ekki gengið óstudd. Hún reyndist hafa lakkrísorsakaðan háþrýsting með alvarlegri lækkun á blóðgildi kalíums sem leiddi meðal annars til vöðvaslappleikans. Þegar við svo fengum tvö önnur tilfelli stuttu síðar skrifuðum við um þessi tilfelli í Læknablaðið 1993; 79; 87-91. Þetta varð til þess að við spurðum okkur hvað þyrfti mikinn lakkrís til að þetta ástand skapaðist.
Gunnar Sigurðsson yfirlæknir var driffjöðurin á bak við þessa fyrstu rannsókn og við fengum starfsfólk spítalans til að taka þátt í þessu með 100 gramma stúdíu og niðurstöðurnar voru ótrúlega skýrar. Við ákváðum þá að gera 50 gramma stúdíu og hún skilaði líka mjög skýrum niðurstöðum. Ég fór síðan í framhaldsnám til Svíþjóðar og ákvað að halda áfram með þessar rannsóknir og nú með stærri hóp en áfram með 50 grömmin. Þá fæ ég helmingi lægri tölur og við nánari athugun kemur í ljós að lakkrís sænska framleiðandans innihélt helmingi minna magn lakkríssýru en íslenski lakkrísinn.
Sælgætisframleiðendur hafa alltaf verið mjög samvinnufúsir og það kom í ljós að íslenski framleiðandinn keypti sinn lakkrís frá öðrum framleiðenda en sá sænski þegar við gerðum fyrstu rannsóknirnar, en þeir íslensku byrjuðu reyndar að skipta við þann sama síðar, svo magn lakkríssýru hefur verið það sama í íslenskum lakkrís og erlendum um árabil. Þarna var ég engu að síður komin með þrjá mismunandi skammta og gat sýnt fram á að hækkun blóðþrýstings var algjörlega háð magninu.
Við sýndum líka fram á að áhrif lakkrís á konur eru önnur en á karlmenn og það styður þá skoðun mína að konur eigi ekki endilega að fá sömu blóðþrýstingslyfjameðferð og karlar. Sérstaklega þarf að rannsaka betur hvort konur á frjósemiskeiði eigi að vera meðhöndlaðar öðruvísi við háum blóðþrýstingi en karlar þar sem hormónahringur þeirra er allt annar. Allt varð þetta til þess að ég skrifaði doktorsritgerðina mína um hömlur á 11βHSD og áhrif þess á blóðþrýsting og ýmis hormón.“
Er lakkrís kannski ávanabindandi? „Það hefur aldrei verið rannsakað en þeim sem þykir lakkrís góður segja gjarnan að þeir séu háðir honum og magnið sem sumir láta ofan í sig gæti bent til þess.“ Greinin birtist fyrst í Læknablaðinu.