• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

,,Glæpastarfsemi á vinnumarkaði verður að stöðva''

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
1. febrúar, 2019
0 0

,,Glæpastarfsemi á vinnumarkaði verður að stöðva. Hún skaðar einstaklinga og samfélagið allt. Við verðum að taka höndum saman og ráðast gegn kennitöluflakki, skilyrða keðjuábyrgð í opinberum framkvæmdum, herða eftirlit með brotastarfsemi og auka vernd fórnarlamba mansals.
Þetta snýst um mannréttindi og heill samfélagsins. Öflug verkfæri til að ráðast gegn svindlurunum er að finna í tillögum starfshóps félagsmálaráðherra sem kynntar voru í gær. Þegar tillögurnar verða að veruleika verður hægt að fagna langþráðum sigri enda hafa þetta verið baráttumál verkalýðshreyfingarinnar í mörg ár.

            Drífa Snædal, formaður ASÍ

Ég er bjartsýn og vongóð um framhaldið. Að taka á glæpastarfsemi á vinnumarkaði ásamt húsnæðismálunum er risastór þáttur í að bæta kjör fólks og tryggja réttindi. Við erum sífellt að færast nær heildarmyndinni sem tengist kjarasamningunum og verður hluti lausnarinnar.
Skattamálin eru einnig risastór þáttur en við hjá ASÍ viljum sanngjarnt skattkerfi sem er raunverulega notað sem jöfnunartæki, þ.e. færir byrðarnar frá þeim sem eru tekjulægstir á þá sem eru aflögufærir.
Hversu mikið hægt er að bæta stöðu launafólks í gegnum skattkerfið ræðst eingöngu af vilja stjórnmálamanna til koma á sanngjörnu kerfi. Róttækar aðgerðir í skattamálum og bótakerfum á síðustu árum hafa nær allar orðið til að auka misrétti. Þegar leiðrétta þurfti verðtryggð húsnæðislán var 21 milljarður kr. fluttur til tekjuhæstu tíundar landsmanna og 62 milljarðar til tekjuhærri helmings framteljenda. Þegar auðlegðarskattur var afnuminn kostaði það ríkissjóð um 10 milljarða á ári og þegar miðþrep tekjuskatts var afnumið kostaði það ríkissjóð 11 milljarða á árunum 2014-2015. Á sama tíma hefur tugum þúsunda einstaklinga verið ýtt út úr barnabóta- og vaxtabótakerfunum með auknum skerðingum og minni fjármunum.
Ofan af þessu óréttlæti verður að vinda. Það er kominn tími á róttækar breytingar. Breytingar sem sannanlega auka jöfnuð.” Segir Drífa Snædal formaður ASÍ

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?