Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hafði í nógu að snúast í janúarmánuði. Um miðjan mánuðinn fékk sveitin tilkynningu frá stjórnstöð um að torkennilegur hlutur hafi fundist í íbúðarhúsi á Ísafirði. Sveitin hélt rakleiðis vestur á Ísafjörð og greindi hlutinn.
Eftir ítarlega greiningu og röntgenmyndir var það mat sprengjusérfræðinga að um meinlausa riffilhandsprengju sem notuð var til æfinga hafi verið að ræða. Hún var sett í járnkassa og var að lokum eytt við gamla þjóðveginn í Óshlíð.
Meinlausa riffilhandsprengjan á Ísafirði.
Í upphafi mánaðarins fór sveitin í Fagradal þar sem torkennilegt dufl fannst í fjörunni. Sprengjusérfræðingar gengu úr skugga um að duflið væri ekki skaðlegt og var að lokum fargað.
Duflið í Fagradal.
Þá héldu liðsmenn sveitarinnar námskeið fyrir aðra starfsmenn og einnig fóru 7 köfunaræfingar fram auk margvíslegra annarra æfinga.
Frá æfingu sprengjusveitarinnar.