• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sigríður Lillý hættir sem forstjóri Tryggingastofnunar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í tilkynningunni segir: ,,Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar (TR), hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri stofnunarinnar og mun hætta þann 6. febrúar næstkomandi. Sigríður Lillý hefur starfað sem forstjóri TR í rúm 14 ár og á hún að baki farsælan feril hjá stofnuninni sem spannar alls 17 ár.

Hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra, í samráði við stjórn TR, farið þess á leit við Sigrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastýru á skrifstofu forstjóra og staðgengil forstjóra, að hún gegni starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Sigrún hefur starfað hjá TR frá því í apríl 2019 en áður var hún kennslustjóri Háskólans á Bifröst í fjögur ár. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu af störfum á vettvangi velferðarmála en sem dæmi var hún fulltrúi í nefnd sem vann fyrstu áætlun stjórnvalda gegn ofbeldi á heimilum og kynbundnu ofbeldi, sem var birt árið 2006, og var á árunum 1991-1995 varamaður og síðar aðalfulltrúi í tryggingaráði. Sigrún hefur meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Starf forstjóra Tryggingastofnunar verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum.“

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?