• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Maður gerir ekki lítið úr störfum annarra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. mars 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Formaður BSRB fór yfir staðreyndir um opinber störf, meinta fjölgun og launaþróun í Sprengisandi helgarinnar. Í þættinum ræðir hún við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og tilvonandi ráðherra, sem sagði nýverið á opnum fundi að það versta við að verða þingkona væri að verða um leið opinber starfsmaður – upp á aðra komin. Sonja Ýr svarar henni fullum hálsi eins og henni einni er lagið.

„Mér var kennt það mjög snemma að maður gerir ekki lítið úr störfum annarra – maður talar ekki um þau með vanvirðingu,” sagði Sonja, „langstærstu geirar hins opinbera eru heilbrigðiskerfið og menntakerfið okkar og skapa okkur svo sannarlega verðmæti. Nú hefur verið talað um að Guðrún taki mögulega við dómsmálaráðuneytinu og þar heyra undir stéttir eins og lögreglan, fangaverðir, almannavarnirnar, dómskerfið líka – hvernig á þetta fólk að skilja þessi skilaboð?

Rætt var um meinta fjölgun opinberra starfsmanna þar sem Guðrún vísaði í nýútgefna skýrslu félags atvinnurekenda.

„Það er bara ekki rétt að starfsmönnum hins opinbera hafi fjölgað meira en í einkageiranum. Ef við skoðum tölur Hagstofunnar hefur hlutfall launafólks sem starfar hjá hinu opinbera haldist mjög svipað eða um 30%, ” sagði Sonja. „Hátt hlutfall opinberra starfsmanna er einkennandi fyrir Norðurlöndin einfaldlega þar sem þau kenna sig við velferð. Ég hélt að það væri samfélagslegur sáttmáli um það, að eftir því sem okkur vegnar betur í þessu landi þá aukast kröfurnar okkar um þjónustu frá hinu opinbera.”

Sonja og Guðrún tókust á um hvar verðmæti verða til í samfélaginu. Sonja blés á staðhæfingar atvinnulífsins um að verðmæti verði eingöngu til á einkamarkaði. Því verðmæti á einkamarkaði verði sannarlega ekki til án góðra menntastofnanna, innviða og heilbrigðisþjónustu. Um samspil sé að ræða.

„Ef við skoðum tölur Kjaratölfræðinefndar þar sem allir aðilar vinnamarkaðins og stjórnvöld sitja við borðið, tölur frá Fjármálaráðuneytinu eða Hagstofu Íslands þá sýna þær allar það sama að það hefur ekki orðið fjölgun opinberra starfa umfram fólksfjölgun og öldrun þjóðar. Nema síður sé. Veikindafjarvera er mun meiri á opinbera markaðnum en á einkamarkaði vegna þess álags sem störfin fela í sér, í heilbrigðisþjónustunni erum við starfsstéttir eins og sjúkraliða, hjúkrunarfræðnga og lækna sem hafa mörg hugsað sér að hætta á næstu mánuðum, og ef þau myndu einfaldlega hætta hvaða áhrif myndi það hafa á verðmætasköpunina? Þessi umræða og þessi nálgun á umræðuna er ekki að hjálpa, því þá á fólk enga von þess að það sé verið að horfa til þess að styrkja þjónustu sem er svo mikilvæg fyrir okkur öll,” sagði Sonja.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á vef Bylgjunnar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?