• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Norðvestan stórhríð og ekkert ferðaveður

Norðvestan stórhríð og ekkert ferðaveður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Norðvestan hríð eða stórhríð verður á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun, og færð spillist líklega á fjallvegum, t.d. Möðrudalsöræfum, Fagradal og Fjarðarheiði. Einnig snarpar vindhviður við fjöll, yfir 35 m/s, austur af Öræfum og á sunnanverðum Austfjörðum á sama tíma. Dregur úr vindi og ofankomu seint annað kvöld. 

 Appelsínugul viðvörun vegna veðurs: Austurland að Glettingi og Austfirðir   Meira
 Gul viðvörun vegna veðurs: Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi   Meira

Hugleiðingar veðurfræðings

Það verður norðlæg átt á landinu í dag, kaldi eða strekkingur við suður- og austurströndina, annars hægari vindur. Snjókoma með köflum austanlands, og dálítil él norðantil, en bjart að mestu sunnan heiða. Frost yfirleitt 0 til 10 stig.

Á morgun fer vaxandi lægð til norðurs fyrir austan land og það hvessir á austurhelmingi landsins. Samkvæmt nýjustu spám gengur í norðvestan hvassviðri eða storm á þeim slóðum auk þess sem búast má við hríðarveðri um landið norðaustanvert. Ef að líkum lætur verður því ekkert ferðaveður austantil á landinu á morgun, og seinnipartinn hvessir enn frekar á Austurlandi og Austfjörðum og þar er fólk hvatt til að huga að lausamunum.
Á vesturhluta landsins verður vindur hins vegar mun hægari, kaldi eða stinningskaldi og él, en þurrt að mestu suðvestanlands. Áfram svalt. Annað kvöld styttir upp og undir miðnætti fer að draga úr vindi fyrir austan.

Á þriðjudag er svo útlit fyrir ákveðna suðaustanátt með snjókomu, og síðar slyddu eða rigningu, sunnan- og vestantil á landinu. Spá gerð: 01.03.2026 06:45. Gildir til: 02.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Norðan 10-15 m/s austast á landinu í dag, annars 3-10. Snjókoma með köflum austanlands, og lítilsháttar él norðantil, en bjart sunnan heiða. Frost 0 til 10 stig.

Gengur í norðvestan 15-28 á morgun, hvassast á Austfjörðum, en hægari vindur á vesturhelmingi landsins. Snjókoma og skafrenningur á Norðaustur- og Austurlandi, él norðvestantil, en þurrt að mestu sunnanlands. Áfram frost um allt land. Styttir upp annað kvöld og fer að draga úr vindi.
Spá gerð: 01.03.2026 10:11. Gildir til: 03.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðaustan 13-20 m/s með snjókomu í fyrstu og síðan rigningu eða slyddu, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður, hiti 0 til 7 stig síðdegis, mildast syðst. Dregur úr vindi seinnipartinn, sunnan 8-15 um kvöldið og kólnar vestanlands með éljum.

Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 og él sunnan- og vestanlands, en léttskýjað annars staðar. Frost víða 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-10 og él, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Suðaustan 8-15 og snjókoma á suðurhelmingi landsins um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.

Á föstudag:
Sunnan 5-13, en 13-18 á vestanverðu landinu. Snjókoma eða él, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Hvöss suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, en rigning um tíma á láglendi. Hlýnar í veðri.
Spá gerð: 01.03.2026 08:11. Gildir til: 08.03.2026 12:00.

 

Umræða
Share18Tweet11
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?