Í dag opnaði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra formlega rafrænan vettvang um sérðhæfða skilnaðarráðgjöf, samvinnaeftirskilnad.is. Verkefnið er unnið að danskri fyrirmynd og byggir efnið á nýjustu þekkingu, sem byggir á bæði rannsóknum fræðimanna og reynslu fagfólks. Verkefnið verður til að byrja með í samvinnu við tvö sveitarfélög, Hafnarfjörð og Fljótsdalshérað. Markmið verkefnisins er að þróa og innleiða nýtt vinnulag í félagsþjónustu og efla félagslega ráðgjöf með áherslu á skilnaðarmál, forsjár- og umgengnismál, barnanna vegna.
Ferlið er þannig að foreldrum sem eru að skilja eða slíta sambúð gefst tækifæri til þess að prófa námskeið í þremur stafrænum áföngum. Auk þess sem fagfólk hjá félagsþjónustu umræddra sveitarfélaga býður sérstaklega upp á sérhæfða einstaklingsráðgjöf og námskeið fyrir fólk sem er skilið og á börn saman.
Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá Hagstofu Íslands lýkur tæplega 40% hjónabanda á Íslandi með lögskilnaði, en þá er ótalinn sá hópur foreldra sem á börn saman og slítur sambúð. Það má því ætla að um sé að ræða um það bil 1100 – 1200 börn árlega á landsvísu sem verði fyrir áhrifum af skilnaði foreldra, eða í kringum 700 barnafjölskyldur á ári.
Langtímaáhrif skilnaðar á líðan barna geta verið verulega íþyngjandi, fyrir börnin sjálf og samfélagið. Það er oft ekki skilnaðurinn sjálfur sem veldur mestum skaða, heldur það hvernig staðið er að honum gagnvart börnunum. Bæði íslenskar og erlendar rannsóknir benda skýrt til þess að hægt sé að lágmarka skaðsemi skilnaðar ef foreldrar fá tímanlega aðstoð við að vinna úr tilfinningalegri togstreitu og ná að vinna saman í skilnaðarferlinu. Með því að veita aðstoð og þjónustu á fyrri stigum, með ráðgjöf hjá félagsþjónustu, standa vonir til þess hægt sé að draga úr líkum á ágreiningi á milli foreldra.
Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Skilnaðir fólks bitna því miður oftar en ekki mest á börnum og þetta verkefni er vonandi fyrsta skrefið í því að innleiða nýtt vinnulag í skilnaðar, forsjár- og umgengnismálum, sem skilar sér í betri líðan barna. Við vonumst til að hægt verði að bjóða þessa þjónustu fljótlega í fleiri sveitafélögum.”
Umsjónarmenn verkefnisins eru Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi MA, aðjúnkt í félagsráðgjöf við HÍ og sérfræðingur í málefnum barna og Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ og þerapisti hjá Meðferðarþjónustunni Tengsl. Frekari upplýsingar er hægt að fá á netvangnum sjálfum samvinnaeftirskilnad.is eða með því að senda fyrirspurn á netföngin gyda@samvinnaeftirskilnad.is eða sigjul@samvinnaeftirskilnad.is
Yfir 90% fráskilinna feðra eru ekki skráðir foreldrar barnanna sinna
https://gamli.frettatiminn.is/yfir-90-fraskilinna-fedra-eru-ekki-skradir-foreldrar-barnanna-sinna/