• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tvö sjúkraflug til Vestfjarða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur farið í tvö sjúkraflug til Vestfjarða í vikunni. Í fyrradag var áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, kölluð út vegna veikinda á Ísafirði. Vegna slæms veðurs var ekki hægt að senda sjúkraflugvél og ekki reyndist unnt að lenda þyrlunni á flugvellinum í bænum. Því var gripið til þess ráðs að lenda TF-EIR á þjóðveginum við Arnarnes. Þangað kom sjúkrabíll frá Slökkviliði Ísafjarðar með sjúklinginn sem var fluttur til Reykjavíkur með þyrlunni.
Í gær fór þyrlusveitin aftur í sjúkraflug, nú til Patreksfjarðar. Þrátt fyrir að ekki hafi verið grunur um COVID-19 smit í útköllunum tveimur er ýtrustu varúðarráðstafana gætt og leiðbeiningum um sóttvarnir fylgt eins og myndin með fréttinni sýnir.
Þyrlusveitin hefur sinnt fjórum útköllum á jafnmörgum dögum. Tvö útköll voru vegna vélsleðaslysa um helgina og í þessari viku hefur sveitin tvívegis sinnt sjúkraflugi eins og áður segir.

IMG_4022 Þyrlulæknir undirbýr sig fyrir sjúkraflutning. Þrátt fyrir að ekki hafi verið grunur um COVID-19 smit er ýtrustu varúðarráðstafana gætt og leiðbeiningum um sóttvarnir fylgt í flugi sem þessu. TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar sést í baksýn á Patreksfirði. 

IMG_4024-2Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjúkrabíll frá Slökkviliði Ísafjarðar á þjóðveginum við  Arnarnes. Mynd: Slökkvilið Ísafjarðar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Eftirlýst kona handtekin

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?