SAS vonast til að geta hafið flug klukkan 14.00 á morgun en ríkissáttasemajari, Mats Wilhelm Ruland segir að undir lok viðræðna í gær, hafi verið kominn sáttartónn hjá aðilum.
Upplýsingafulltrúi SAS, Knut Morten Johansen, segir í samtali við norska ríkisútvarpið, NRK að aðilar hafi undirbúið samkomulag fyrir fundinn í dag. ,,Við erum komin í gott og uppbyggilegt innlegg og við vonum að fá lausn á þessu hörmulega verkfalli með hjálp sáttasemjarans, segir Johansen.“ Upplýsingafulltrúinn segir jafnframt að það muni taka nokkurn tíma að koma aftur á venjubundnum rekstri ef aðilar ná að gera samkomulag í dag.
Á leið til fundarins, sagði formaður launþega hjá SAS, Marianne Hernes, ,,við vonum vissulega að það sé kominn grundvöllur fyrir lausn á deilunni núna.“ Hingað til hefur SAS hætt við allar brottfarir til kl. 14:00 á morgun og við höfum nú tækifæri til þess að enda átökin og ná lausn í deilunni.
Yfir 300.000 strandaglópar
Verkfallið hjá SAS hófst síðastliðinn föstudag eftir að samningaviðræður milli aðila var aflýst. Hingað til hefur samtals 3306 brottförum verið aflýst og næstum 330.000 farþegar hafa orðið fyrir miklum óþægindum vegna verkfallsins. SAS hefur sagt að 504 brottfarir verði aflýstir 1. maí og að 47.583 farþegar verði fyrir áhrifum þess.
Ósamkomulag aðila
Samband milli samningsaðila hefur verið slæmt síðan að verkfallið hófs. Torbjørn Wist, fjármálastjóri SAS, sagði á þriðjudag að flugmennirnir hefðu sett fram óraunhæfar kröfur og vildu bara koma á verkfalli án þess að semja. Flugmennirnir ásaka SAS á móti um að vilja losna við ákveðinn hóp flugmanna, frá félaginu.