Lögreglan hefur sent út tilkynningu um nöfn fólksins sem létust í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag. Þau hétu Finnur Einarsson, 54 ára og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára.
Þau voru sambýlisfólk, búsett í Garðabæ, og láta eftir sig fjögur, uppkomin börn. Fréttatíminn vottar börnum, ættingjum og vinum samúðar.