• 442.is
  • Veiðin.is
No Result
View All Result
Fréttatíminn.is
  • Login
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Ferðaþjónusta
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Ferðaþjónusta
  • Veiðin.is
No Result
View All Result
Fréttatíminn.is
No Result
View All Result

ADVERTISEMENT

250,000 kr. sekt vegna ökuskírteinis stjórnvalda – ,,Stafræn skilríki frá Íslandi, virka ekki”

,,Ég á aldrei eftir að fá þessar 250.000 krónur til baka"

Ritstjórn Fréttatímans by Ritstjórn Fréttatímans
8. ágúst, 2022

ADVERTISEMENT

,,Ég er mjög svekktur út í stjórnvöld á Íslandi sem gefa út ökuskírteini sem virka ekki nema á þjóðvegum á Íslandi, vægast sagt,” segir íslendingur sem er staddur ásamt fjölskyldu sinni á Ítalíu.

Þurfti að greiða 250.000 króna sekt vegna stafræns ökuskírteinis

Málið er það að þessi ökuskírteini sem eru rafræn og maður getur haft í símanum sínum, og hægt er að fá í gegnum síðuna Ísland.is virka hvergi í veröldinni nema á Íslandi. Við fjölskyldan erum hér á Ítalíu og leigðum okkur bíl og í góðri trú sýndum við afgreiðslumanni bílaleigunnar þetta rafræna ökuskírteini sem virðist vera eitthvað gæluverkefni stjórnvalda sem virkar ekki í raunheimum, nema þá í kerfi lögreglunnar á Íslandi sem er algerlega lokað í öðrum löndum.

Þegar það uppgvötvaðist á bílaleigunni að við vorum með “plat skírteini” var umsvifalaust skellt sekt á greiðslukortið upp á 250.000 krónur og bílaleigan sem er alþjóðleg, ætlar aldrei að bakka með þá sekt og segir að við höfum brotið skilmála með því að framvísa ógildu ökuskírteini. ,,Bíllinn hefði verið ótryggður ef sá sem ekur er réttindalaus og skaðinn lent á bílaleigunni,” sögðu þeir.

Ég á aldrei eftir að fá þessar 250.000 krónur til baka, það er búið að útskýra það vel og vandlega fyrir mér. Það sem meira er, er það að ég veit um fleiri sem hafa lent í þessu og sektirnar hafa verið frá 150.000 kr. til 250.000 kr.

Mér finnst það hrikalega léleg vinnubrögð hjá stjórnvöldum á Íslandi að kynna það ekki fyrir þjóðinni að þessi skírteini séu bara plat skírteini og virki ekki erlendis. ,,Stafræn skilríki frá Íslandi, virka ekki” og það hefði verið gott að vita það fyrr.” Sagði ökumaðurinn sem lenti í þessu atviki erlendis.

Þess má geta að Fréttatíminn birti nýlega neðangreinda grein um þessi ökuskírteini fyrir lesendur vegna þess að okkur þótti kynninging á þeim léleg gagnvart notendum eins og nú hefur ítrekað komið í ljós:

Stafrænt ökuskírteini gildir aðeins á Íslandi

 

Share97TweetShare

Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Discussion about this post

https://verslun.normx.is/product/hengirum/ https://verslun.normx.is/product/hengirum/ https://verslun.normx.is/product/hengirum/
ADVERTISEMENT

Mest lesið í dag

  • Mannrán í Keflavík – Útgerðarmenn að verki

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lenti á botninum og lagður inn á geðdeild

    3 shares
    Share 3 Tweet 0
  • Hátt í 3000 manns leituðu að Bjarna án árangurs

    7 shares
    Share 7 Tweet 0
  • SUMARIÐ BÚIÐ? – ,,10 DAGA SPÁIN ER ANSI AFGERANDI”

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Gera stólpagrín að seðlabankastjóra og ríkisstjórninni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Ferðaþjónusta
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In