• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nú duga ekki lengur orðin ein

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. janúar 2019
in Ferðaþjónusta, Fólk
A A
0

Nú er komið að þeim tímapunkti í kjaradeilunni að orðin ein duga ekki lengur, hvorki af hálfu ríkisstjórnar né Samtaka atvinnulífsins. Nú er kominn tími ákvarðana.
Það er mikilvægt að þessir tveir aðilar leggi sig fram um að skilja sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar. Hin nýja forysta hennar er ekki skipuð tómum „vitleysingum“ eins og stundum heyrist hér og þar.
Stöðugleikinn skiptir máli en bæði ríkisstjórn og SA verða að horfast í augu við sjálfa sig. Þessi leikur hófst fyrir tveimur árumn með ákvörðunum Kjararáðs og ákvörðunum stærstu fyrirtækja um launabreytingar æðstu stjórnenda fyrirtækja.
Þeir sem neita að horfast í augu við þennan veruleika á hinum pólitíska vettvangi og í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni, sitja í glerhúsi.
Því fyrr sem þessir aðilar viðurkenna þennan veruleika fyrir sjálfum sér þeim mun betra.

Áramótaræða forsætisráðherra: Vel samin og vel flutt, en…

Áramótaræða Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í gærkvöldi, var vel samin og vel flutt, eins og við mátti búast af hennar hendi en hún tók ekki á hinum dýpri vandamálum samfélagsins. Kannski þykir það ekki við hæfi á hátíðarstundu og ekki í fyrsta sinn. Það sé hlutverk kjörinna leiðtoga þjóðarinnar að tala af bjartsýni en ekki bölmóð.
En getur verið að stundum sé það svo að þjóðin setjist við sjónvarpsskjáinn á gamlárskvöld og vonist eftir því að forsætisráðherra hverju sinni fjalli um hina erfiðari þætti sameiginlegra málefna þjóðarinnar? Og verði fyrir vonbrigðum ef það er ekki gert.
Auðvitað er það svo, að hvert okkar um sig upplifir umhverfið með ólíkum hætti og að þegar horft er yfir Ísland allt út um glugga stjórnarráðsins sé allt í himna lagi.
Það er samt sem áður umhugsunarefni fyrir kjörna fulltrúa, hvort það sé ekki svolítið gamaldags viðhorf að einblína á hinar björtu hliðar tilverunnar en láta sem lítið fari fyrir hinum dekkri hliðum.
Fram eftir 20. öldinni var íslenzkt samfélag bæði þröngsýnt og lokað og um erfið mál var ekki talað. En það hefur verið að breytast.
Er ekki nauðsynlegt fyrir stjórnmálamennina að laga sig að þeim breytta tíðaranda?!

Tækifæri fyrir Sósíalistaflokkinn?

Vísbendingar um, að Vinstri grænir séu smátt og smátt að fjarlægjast uppruna sinn í Alþýðubandalaginu og þar með í verkalýðshreyfingunni og áherzlan sé nú fremur á umhverfisvernd  vekja upp spurningar um hvort í því felist tækifæri fyrir Sósíalistaflokkinn.
Að þar með opnist möguleiki fyrir hann til þess að ná til eldri kjósenda VG, sem studdu Alþýðubandalagið á öðrum forsendum um leið og yngri kjósenda, sem sumir hverjir hafa sýnt sósíalisma meiri áhuga en búast mátti við, þegar Sovétríkin og allt, sem þeim fylgdi féllu.
Jafnframt er augljóst að Sósíalistaflokkurinn hefur í upphafi tilveru sinnar lagt mesta áherzlu á að ná tengslum við verkalýðsfélögin.  “Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. ritstjóri Morgunblaðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?