Grease stjarnan hefur verið greind með krabbamein nú í þriðja sinn og sögusagnir eru þegar byrjaðar um að hún sé nálægt því að missa líf sitt
Hið rétta er skv. frásögn frænku Oliviu Newton-John að aðdáendur stjörnunar geti andað léttar þar sem að hún sé við góða heilsu þrátt fyrir sögusagnir um að hún eigi aðeins fáar vikur eftir ólifaðar.
Grease leikkonan hefur nú verið greind með krabbamein í þriðja sinn og sögusögnum hefur m.a. verið dreift um að hún væri að reyna að lifa það af að sjá dóttur sína giftast.
En nú hefur frænka hennar, Tottie Goldsmith, og starfsmenn hennar fullyrt að allt þetta tal og sögur um að Olivia Newton-John sé að berjast fyrir lífi sínu, séu rangar og í raun bara hlægilegar. ,,Fólk vill greinilega trúa svona dramasögum“
Newton-John, sem er sjötug, var fyrst greind með brjóstakrabbamein árið 1992 og aftur árið 2013, en í þetta sinn var það í öxlinni. Hún hefur talað um krabbameinið sem þriðja bardaga sinn síðan 2017, þar á meðal hefur hún fjallað um notkun á öðrum meðferðum eins og olíu af kannabis.
Eiginmaður hennar, John Easterling, ræktar kannabis á búgarði sínum í Kaliforníu þannig að hún geti notað það sem hluta af meðferðinni.
Hér að neðan má sjá áramótakveðju frá Oliviu Newton-John :
https://www.facebook.com/olivianewtonjohn/videos/1618203204992927/