Það er augljóst mál að bankarnir eru ein stærsta mjólkurkú þjóðarinnar og hafa skilað henni 800 milljörðum í hagnað frá hruni og þjóðin á þá sem hefur greitt okurvexti til bankanna.
,,Þessa botnlausu græðgi verður að stoppa með öllum tiltækum ráðum. – Þriðja sturlaða staðreyndin!“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR skrifar um okurvexti
Hreinar vaxtatekjur bankannna voru tæplega 100 milljarðar fyrstu 9 mánuði ársins 2022 og höfðu hækkað um rúmlega 19,7 milljarða miðað við fyrstu 9 mánuðum ársins 2021 þegar þær voru 80,2 milljarðar.
Áætla má að hrein aukning á vaxtatekjum bankanna verði 27 milljarðar á árinu 2022 og verði um 133 milljarðar.
Bankarnir soga til sín fjármagn frá skuldugum heimilum og fyrirtækjum í boði stjórnvalda og Seðlabankans.
Þessa botnlausu græðgi verður að stoppa með öllum tiltækum ráðum.