• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkislögreglustjóri: Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga

Myndin tengist ekki fréttinni beint

Auknar líkur á eldgosi

6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið við Svartsengi og Bláa lónið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Líkön sem byggja á GPS gögnum sem farið var yfir á fundi með vísindafólki frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið kennt við Svartsengi. Miða við þetta mat er líklegt að kvikumagnið nái svipuðu rúmmáli og fyrir eldgosið 14. janúar á næstu tveimur vikum og jafnvel dögum. Þetta þýðir að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist.

Ekki er víst að fyrirvarinn verði eins langur og í síðasta eldgosi (14. janúar), en þá var um fimm klukkustunda fyrirvari frá því jarðskjálftahrina byrjaði þangað til að eldgos hófst rétt sunnan Hagafells. Fyrirvarinn fyrir eldgosið milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks þann 18. desember síðastliðinn var um 90 mínútur, en það gos kom upp um það bil við miðjan kvikuganginn. Við endurtekin kvikuhlaup er líklegt að leiðin fyrir kvikuna verði greiðari og því fylgir minni jarðskjálftavirkni. Kvikuhlaupum fylgir þó alltaf aukinn smáskjálftavirkni og er líklegast að fyrirvari verði í það minnsta ein klukkustund í aðdraganda eldgoss sem lang líklegast mun rata í farveg kvikugangsins sem myndaðist 10. nóvember síðastliðinn.

Jarðskjálftavirkni hefur verið svipuð síðustu viku. Síðustu sjö daga hafa tæplega 200 jarðskjálftar mælst yfir kvikuganginum. Flestir skjálftanna voru smáskjálftar, undir 1,0 að stærð, á 2 til 5 km dýpi á svæðinu frá Stóra-Skógfelli í norðri og skammt suður fyrir Hagafell. Stærsti jarðskjálftinn mældist 1,8 að stærð staðsettur tæpan kílómeter sunnan við Hagafell.

Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort. Helstu breytingar eru þær að svæði 3 (Sýlingarfell – Hagafell) fer upp í rautt (mikil hætta), svæði 2 og 6 fara upp í appelsínugult (töluverð hætta). Grindavík helst óbreytt (svæði 4).Haettusvaedi_VI_1feb_2024Heildarhættumat fyrir hvert svæði er byggt á samanlögðu mati á sjö tegundum af hættu sem er til staðar eða gæti skapast innan svæðanna. Litur svæða endurspeglar þannig heildarhættu innan svæðanna. Í listanum á kortinu sem sýnir hættur innan svæða, er eingöngu talin upp hætta sem metin er „töluverð“, „mikil“ eða „mjög mikil“ innan hvers svæðis. Sú hætta sem metin er „mikil“ eða „mjög mikil“ er feitletruð.

Skjamynd-2024-02-01-153224

Það skal tekið fram að þó svo að heildarhættumat fyrir Grindavík sé það sama og fyrir viku hefur hætta vegna hraunflæðis verið færð upp í mikil hætta. En hætta vegna jarðfalls ofan í sprungur er áfram metin mjög mikil.

Umræða
Share30Tweet19
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    353 deilingar
    Share 141 Tweet 88
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?