• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Öruggara Ísland: Heildstæð stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir kynnti í morgun stefnu og aðgerðir stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi

Öruggara Ísland: Heildstæð stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Dómsmálaráðherra kynnti í morgun nýja stefnu og aðgerðir stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi á fjölmennum morgunverðarfundi. Stefnan, sem ber heitið Öruggara Ísland, er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og markar tímamót í baráttu stjórnvalda gegn einni alvarlegustu ógn sem steðjar að almannaöryggi.

Í ræðu sinni lagði ráðherra áherslu á að skipulögð brotastarfsemi á Íslandi væri orðin alþjóðavædd , fjölþætt og í meginatriðum sambærileg þeirri sem þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Samkvæmt nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra hefur fjöldi virkra brotahópa tvöfaldast á síðasta áratug, úr um tíu hópum árið 2015 í um tuttugu í dag. Hóparnir tengjast meðal annars löndum í Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu og starfa þvert á landamæri.

„Reynsla Norðurlandanna sýnir hversu hratt skipulögð brotastarfsemi getur vaxið ef ekki er brugðist við í tíma. Við ætlum að spyrna við fótum áður en það verður of seint og senda þau skýru skilaboð að glæpahópar fá ekki að starfa hér. Ef menn eru komnir til Íslands til að brjóta af sér þá verður þeim brottvísað umsvifalaust,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að auka eigi öryggi almennings og taka fast á skipulagðri glæpastarfsemi. Með útgáfu stefnunnar er þeirri pólitísku skuldbindingu fylgt eftir með heildstæðri sýn og skýrum aðgerðum. Stefnan var kynnt fyrir ríkisstjórn síðastliðinn föstudag.

Fyrstu skrefin í langtímaverkefni

Stefnan byggir á þremur megináherslum:

  1. Raunverulegur árangur og aukin skilvirkni í refsivörslukerfinu, meðal annars með endurskoðun refsiákvæða, styrkingu lögreglu og nútímavæðingu réttarfars.
  2. Virkar og gagnreyndar afbrotavarnir, með sérstakri áherslu á íhlutun gagnvart ungmennum, upplýsingamiðaða löggæslu, aukið samstarf yfirvalda og markvissari aðgerðir gagnvart brotahópum.
  3. Aukið og markvisst alþjóðlegt samstarf, þar á meðal innan Schengen, við Europol, Eurojust og Interpol, enda virða skipulagðir glæpir engin landamæri.

Markmið stefnunnar og þeirra aðgerða sem boðaðar eru er að auka árangur og fælingarmátt refsivörslukerfisins, koma í veg fyrir að brot verði framin með markvissum forvörnum og styrkja alþjóðlegt samstarf til að takast á við brotahópa sem starfa þvert á landamæri. Stefnunni fylgja lykilaðgerðir sem verða útfærðar nánar í sérstakri aðgerðaáætlun. Um er að ræða fyrstu skref í langtímaverkefni sem krefst stöðugrar árvekni, samvinnu og skýrrar forgangsröðunar.

Samhent átak til að tryggja öryggi almennings

Í ræðu sinni þakkaði ráðherra sérstaklega þeim sem komu að vinnunni og lagði áherslu á að árangur næðist aðeins með samhentu átaki. Stefnan var unnin í víðtæku samráði við lögregluembætti, tengslafulltrúa Íslands hjá Europol og Eurojust og aðra lykilaðila.

„Lögreglan í landinu verður aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Þess vegna verðum við að ganga í takt, tala hvert annað upp og vinna sem ein heild,“ sagði ráðherra.

Með útgáfu Öruggara Íslands er lagður grunnur að markvissara og samræmdara átaki stjórnvalda til að tryggja öryggi almennings og vernda samfélagið gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Markvissari beiting brottvísana gegn brotamönnum

Á fundinum voru einnig kynntar tillögur að aðgerðum um markvissari beitingu brottvísana gagnvart erlendum brotamönnum innan Schengen-svæðisins. Þær tillögur eru hluti af lykilaðgerðum stefnunnar.

Undanfarin ár hefur færst í aukana að einstaklingar nýti frjálsa för innan Schengen-svæðisins til að stunda refsiverða háttsemi. Að beiðni dómsmálaráðherra var embætti ríkislögreglustjóra falið að greina stöðuna hér á landi og leggja fram tillögur um úrbætur, í samráði við dómsmálaráðuneytið, lögregluembættin og Útlendingastofnun. Afurð þeirrar vinnu er meðal annars samræmt verklag allra lögregluembætta og annarra stofnana við forgangsröðun og mat á málum sem varða allsherjarreglu og almannaöryggi. Markmiðið er að stórauka fjölda brottvísana einstaklinga sem dvelja á Íslandi í annarlegum tilgangi.

„Þetta snýst ekki um þjóðerni. Það eina sem skiptir máli er hvort menn eru komnir hingað til að brjóta af sér. Ef svo er, verður þeim vísað úr landi umsvifalaust og endurkomubanni beitt,“ sagði ráðherra og lagði áherslu á að markmiðið væri skýrt: að Ísland yrði ekki áfangastaður eða athvarf fyrir skipulagða brotastarfsemi.

Stefnuna í heild sinni má lesa hér

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Hvessir og frost 5 til 15 stig

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?