Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, skýrir frá því að dómur sé fallinn í héraðsdómi Reykjavíkur vegna verðtryggðra neytendalána. Dómurinn féll ríkin í vil en hún segir að þessi dómur stenst enga skoðun og að málinu verði að sjálfsögðu áfrýjað ,,en þetta er eiginlega eins og að vera í skák við einhvern sem breytir í sífellu mannganginum og reglunum.“
Félagið hefur sent kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna gengistryggðra lána á Íslandi og er beðið eftir úrskurði frá dómstólnum.
,,Í gær, 27. febrúar, var dómur felldur í skaðabótamáli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna vegna verðtryggðra neytendalána gegn íslenska ríkinu. Í dómsorði er tekið undir með eldri dómi Hæstaréttar að um ranga innleiðingu laga um upplýsingagjöf til neytenda hafi verið að ræða og einnig viðurkennir dómarinn að röng innleiðing tilskipunarinnar leiði af sér skaðabótaskyldu.
Dómarinn fann glufu með því að vitna í tilskipun um neytendavernd EES frá 1987 þar sem fasteignalán voru á endanum undanþegin til að koma til móts við mismunandi lánsform í löndunum sem hlut áttu að máli.
Árið 2001 samþykkti Alþingi hins vegar lög sem taka af allan vafa um að fasteignalán falli undir neytendalán.
Fasteignalánið sem málið snýst um er tekið árið 2003 og fellur því án nokkurs vafa undir lög um neytendalán frá 2001 þannig að þessi dómur stenst enga skoðun.
Málinu verður að sjálfsögðu áfrýjað en þetta er eiginlega eins og að vera í skák við einhvern sem breytir í sífellu mannganginum og reglunum.“ Segir Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
https://www.fti.is/2019/01/30/staersta-skadabotamal-islandssogunnar-tugthusundir-lanthega-eiga-rett-a-skadabotum/
https://www.fti.is/2019/01/13/kaera-hefur-verid-send-til-mannrettindadomstols-evropu-vegna-gengistryggdra-lana/