Björgunarsveitir voru kallaðar út á Vestfjörðum, Austfjörðum og Suðurlandi í dag vegna slysa. Tveir urðu fyrir snjóflóði í Stafdal og einn lenti í vélsleðaslysi á Drangajökli.
Skíðamaður slapp lítið meiddur eftir að hann grófst undir snjóflóði sem féll utan brauta við skíðasvæðið í Stafdal ofan Seyðisfjarðar um klukkan fjögur í dag. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins að sögn ríkútvarpsins.
Tveir menn voru saman á ferð og lenti annar undir flóðinu. Hinum tókst að ná honum upp en þá hafði aðgerðastjórnin á Austurlandi og samhæfingarstöð almannavarna verið virkjuð og þyrla Landhelgisgæslunnar var reiðubúin að fljúga austur með mannskap og búnað. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar var upplýst um atvikið og hefur svæðinu verið lokað á meðan metið er hvort enn sé hætta til staðar.
Um svipað leyti varð vélsleðaslys á Drangajökli. Björgunarsveitir frá Drangsnesi og Árneshreppi voru kallaðar út auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug vestur. Eftir því sem næst verður komist eru meiðsl þess sem varð fyrir slysinu ekki talin alvarleg en erfitt er að komast að svæðinu. Viðkomandi mun hafa farið úr axlarlið eða olnbogalið. Þegar aðstæður skýrðust var aðstoð þyrlunnar afþökkuð.
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna beggja þessara atvik. Fyrst var óskað eftir þyrlu vestur á Drangajökul. Skömmu síðar var óskað eftir því að þyrla, sem var til reiðu vegna jarðhræringanna á Suðurnesjum, færi austur. Sú hjálparbeiðni var afturkölluð skömmu síðar og var þyrlan því áfram til reiðu fyrir vísindamenn sem voru viðbúnir því að kanna eldgos sem þá virtist allt stefna í.
Þessu til viðbótar fóru björgunarsveitir á Suðurlandi til hjálpar tveimur sem slösuðust. Annar féll og ökklabrotnaði við Geysi en hinn féll á Sólheimajökli.