• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umboðsmaður Alþingis krefur heilbrigðisráðuneytið svara um 75.000 króna eftirlitsgjalds vegna rafrettna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Umboðsmaður spyr um kostnaðargrunn eftirlitsgjalds á rafrettur

Umboðsmaður Alþingis hefur krafið heilbrigðisráðuneytið svara um kostnaðargrunn 75.000 króna eftirlitsgjalds, sem lagt er á hverja tilkynningu til Neytendastofu vegna markaðssetningar rafrettna og tengdra vara. Félag atvinnurekenda kvartaði við umboðsmann vegna fjárhæðar gjaldsins og málsmeðferðar ráðuneytisins í desember síðastliðnum. Að mati félagsins er gjaldtakan mjög íþyngjandi fyrir innflytjendur rafrettna og tengdra vara og felst í henni ólögmæt skattheimta.
Í erindi umboðsmanns til heilbrigðisráðuneytisins er óskað upplýsinga um hvaða kostnaðarliðir liggi gjaldinu til grundvallar og að ráðuneytið skýri hvernig þeir standi „í nánum og beinum efnislegum tengslum við veitingu þeirrar sérstöku þjónustu sem því er ætlað að standa undir.“ Umboðsmaður krefst kostnaðarútreikninga og minnir á að ákvörðun fjárhæðar þjónustugjalda verði að byggjast á traustum útreikningi á þeim kostnaði sem almennt hlýst af því að veita þá þjónustu sem gjaldheimildin nær til.
Kostnaðargreiningin kom eftir á
Reglugerðin sem gjaldið byggist á, var staðfest 31. ágúst síðastliðinn og tók gildi daginn eftir. Eftir að FA hafði gert athugasemdir við fjárhæð gjaldsins og vinnubrögð ráðuneytisins og krafist rökstuðnings fyrir fjárhæð gjaldsins, barst félaginu kostnaðargreining Neytendastofu vegna gjaldsins, en hún var ekki dagsett fyrr en 4. febrúar 2019.
Í erindi umboðsmanns segir: „Af bréfaskiptum ráðuneytisins við Félag atvinnurekenda […] fæ ég ekki betur séð en að kostnaðargreining vegna gjaldsins hafi verið unnin af hálfu Neytendastofu. Þess er óskað að heilbrigðisráðuneytið veiti mér upplýsingar um hvort og þá hvaða upplýsingar um kostnað einstakra rekstrarþátta hafi legið fyrir í ráðuneytinu þegar reglugerð nr. 803/2018 var staðfest. Hafi ráðuneytið ekki haft undir höndum upplýsingar um kostnað einstakra rekstrarþátta og útreikninga þá sem lágu til grundvallar tillögum Neytendastofu óska ég afstöðu ráðuneytisins til þess hvort og þá hvernig ráðuneytið telji sig hafa reist ákvörðun sína með að staðfesta fjárhæð gjaldsins með setningu reglugerðar nr. 803/2018 á fullnægjandi grundvelli og almennum reglum stjórnsýsluréttar um gjaldtöku hins opinbera.“
 
Erindi umboðsmanns til heilbrigðisráðuneytisins

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?