• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eldgosið er byrjað

Almannavarnir: Hættustig

Fréttatilkynning til fjölmiðla – almannavarnastig:  Hættustig.

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. apríl 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Engin virkni er sjáanleg í gossprungu sem opnaðist í gær um klukkan 9:45 suðvestan af fjallinu Þorbirni, norðan við Grindavík. Enn logar þó glóð í nýju hrauni. Að mati vísindamanna flæðir kvika enn inn í kvikuganginn. Svæðið er óstöðugt og varasamt.  Talsverð jarðskjálftavirkni mældist í gær á Reykjanesskaga en í gærkvöldi tók að draga úr þeirri virkni en hún heldur þó áfram.Talið er ólíklegra með tímanum að ný gosop verði yfir kvikuganginum, þótt ekki sé hægt að útiloka það vegna þess að enn mælist töluverð smáskjálftavirkni á svæðinu.

Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið kl. 15 í dag, sjá hættumatskort í viðhengi.  Hættumatið gildir til 4. apríl nk., kl. 15 að öllu óbreyttu.  Hættumatið felur í sér breytingar, sjá nánar:  Engin virkni sjáanleg í gossprungunni sem opnaðist í gær | Fréttir | Veðurstofa Íslands

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað fyrir hádegi í dag að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig.   Fréttatilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna kl. 11:27 í dag.  Sjá á slóðinni:

Af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga | Almannavarnir

Gera má ráð fyrir því að Grindavíkurnefndin uppfæri sitt áhættumat sem unnið er í samstarfi við ríkislögreglustjóra í framhaldi af uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.

Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og Nesvegi.   Aðgangur er því takmarkaður inn á hættusvæðið.   Grindavíkurvegur er nú opinn inn að Bláa lóni og orkuverinu í Svartsengi.

Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta.  Koma þarf við í björgunarhúsinu í Grindavík áður en farið er inn á merkt vinnusvæði.   Hús björgunarsveitarinnar Þorbjörns er staðsett að Seljabót 10, Grindavík.

Íbúar Grindavíkur og starfsmenn þar hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta inn til Grindavíkur um Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.  Ákveðið með hliðsjón af stöðu jarðhræringa.   Lokunarpóstar ná ekki til orkuversins, Bláa lónsins og Northern Light Inn.   Flóttaleiðir eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg.

Sem stendur er ferðamönnum ekki hleypt inn til Grindavíkur.  Færð á vegum getur spillst með stuttum fyrirvara á þessum tíma árs.

  • Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Það sama gildir um ferðamenn.   Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því að hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.
  • Lögreglustjóri mælir með því að fólk skoði meðfylgjandi hættumatskort Veðurstofu Íslands.  Þá mælir hann með því að fólk kynni sér efni fréttatilkynningar ríkislögreglustjóra sem send var út 1. apríl sl.
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi innan hættusvæða sem felast m.a. í hækkun varnagarða, í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.

Lögregla sendir út eftirfarandi varnaðarorð inn á farsíma (GSM) í Svartsengi og í Grindavík:  Grindavik is a volcanic area! Increased activity is observed, eruption may be possible. Stay alerted and prepared for evacuation. Info at www.safetravel.is    Gera má ráð fyrir því að slíkar sendingar ,,leki“ út fyrir skilgreint hættusvæði.  Tilgangur með þessum sendingum er að ná til erlendra ferðamanna sem koma inn á hættusvæðið.   Fyrirkomulag á þessum sendingum eru endurskoðaðar reglulega.

Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina.  Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif.  Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið  manntjóni.   Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur.   Það er hins vegar aðeins fyrir  sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna.  Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar.   Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða.   Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi.  Það þekkja heimamenn og útivistamenn sem gengið hafa um svæðið.   Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum.  Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn.   Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða.  Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða.   Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut.   Sama gildir um Grindavíkurveg.

Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Fréttatilkynningin verður uppfærð þann 4. apríl 2025 eða fyrr eftir atvikum.

Umræða
Share14Tweet9
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?