• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hækkun húsnæðisverðs er sannanlega innlendur vandi

Áskorun til Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. maí 2022
in Aðsent & greinar
A A
0

VR, Verkalýðsfélag Akraness og Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent Peningastefnunefnd eftirfarandi áskorun: Fyrir hönd VR, Verkalýðsfélags Akraness og Hagsmunasamtaka heimilanna, vilja undirrituð biðla til peningastefnunefndar Seðlabankans og um leið Seðlabankastjóra, að hækka ekki álögur á heimilin þrátt fyrir aukna verðbólgu.

Ekki auka álögur á heimilin í vaxandi verðbólgu

Vaxtahækkanir geta í einhverjum tilfellum verið réttlætanlegar til að slá á verðbólgu en það á ekki við þegar verðbólgan stafar aðallega af utanaðkomandi aðstæðum sem ekki verða raktar hér, auk skorts á húsnæði sem valdið hefur mikilli hækkun húsnæðisverðs.

Hækkun húsnæðisverðs er sannanlega innlendur vandi, en þá ber að hafa tvennt í huga:

  • Skortur á húsnæði er ekki fólkinu í landinu að kenna. Sá skortur stafar t.d. af allt of lítilli uppbyggingu og skammsýni bæði sveitastjórna og ríkisstjórna undanfarinna ára, í þessum málaflokki. Það getur ekki verið réttlætanlegt að velta afleiðingum þessarar skammsýni yfir á heimili landsins.
  • Einungis lítið brot þjóðarinnar er á húsnæðismarkaði á hverjum tíma. Það getur ekki verið réttlætanlegt að velta þessum vanda yfir á alla sem skulda húsnæðislán enda, eins og áður er rakið, eiga heimili landsins enga sök á ástandinu.

Þegar verðbólga stafar fyrst og fremst af þáttum eins og heimsfaraldri og stríði út í heimi, getur hækkun vaxta hér á landi ekki haft nokkur áhrif á hana.

Það eina sem hækkun vaxta gerir er að auka á byrðar heimilanna auk þess að beina fjármunum þeirra, algjörlega að ástæðulausu, beint í yfirfullar fjárhirslur bankanna.

Hvað varðar batnandi „eiginfjárstöðu heimilanna“ þá stafar hún ekki af því að skuldir heimilanna hafi lækkað, heldur því að matsverð eigna hafi hækkað. Matsverð skiptir í raun engu máli fyrr en eign er seld og jafnvel ekki þá, því markaðurinn hefur hækkað að sama skapi, auk þess sem rétt er að minna á að ráðstöfunarfé heimilanna eykst ekki með hækkandi matsverði þó fasteignagjöld geri það.

Við förum því fram á að Seðlabankinn verji heimilin fyrir áhrifum verðbólgunnar og beiti frekar öðrum stýritækjum sem hann ræður yfir, sem hljóta að vera einhver, en aðalmálið er að auka ekki álögur á heimili landsins.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR

Vilhjálmur Birgisson formaður Verklýðsfélags Akraness

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?