• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 8. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Undirritun samnings um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftlagsmála

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. júní 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Mynd: Viðar Helgason hjá Íslenska Orkuklasanum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ríkharður Ibsen hjá GRP og Ari Kristinn Jónsson rektor HR
.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samning við Háskólann í Reykjavík, Orkuklasann og GRP ehf., um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftlagsmála. Undanfarin ár hafa íslenski Orkuklasinn og GRP ehf., ásamt stjórnvöldum, verið í samstarfi við Cornell háskóla í Bandaríkjunum með það að markmiði að vinna að þekkingaryfirfærslu í orkumálum og sjálfbærni, auk samstarfs í vísindarannsóknum og menntamálum. Með samningnum er efnt til áframhaldandi samstarfs við Cornell háskóla til næstu fjögurra ára og er markmiðið að samstarfið muni leiða af sér aukin tækifæri í nýsköpun, þekkingaryfirfærslu, sjálfbærni, grænum orkulausnum og verðmætaaukningu fyrir íslenskt samfélag.Í samningnum er m.a. kveðið á um eftirfarandi verkefni:

  1. Undirbúningur úttekta á sjálfbærni Íslands; úttekt á orkukerfi Íslendinga, landbúnaðarkerfi og sjávarútvegskerfi.
  2. Greining á tækifærum nýsköpunar í grænni tækni á Íslandi, t.d. í orkugeiranum og í sjávarútvegi.
  3. Aukið samstarf við Cornell í menntamálum og rannsóknum og frekari tengingar við háskólaumhverfið á Íslandi.
  4. Uppsetning á námskeiðum um græna orku og sjálfbærni tengt sérstöðu Íslands.
  5. Stuðla að samstarfi við alþjóðlega rannsóknarsjóði vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna tengdum loftlagsmálum, sjálfbærni og grænni orku.
  6. Setja upp sjálfbæra miðstöð endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi í samstarfi við Cornell og tengda aðila.
  7. Samstarf í markaðsmálum með áherslu á sérstöðu Íslands í orkumálum og sjálfbærni.

Samstarfsverkefnið er vistað hjá Orkuklasanum en sérstök verkefnisstjórn hefur umsjón með verkefninu undir forystu Háskólans í Reykjavík.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: „Við höfum átt gott samstarf við Cornell háskóla á undanförnum árum og með þessum samningi þá römmum við það samstarf nánar inn til næstu fjögurra ára, með aðkomu Háskólans í Reykjavík, Orkuklasans og GRP. Í samstarfinu felast fjölmörg tækifæri á sviði nýsköpunar, orku, sjálfbærni og loftlagsmála og má þar nefna greiningu á tækifærum nýsköpunar í grænni tækni á Íslandi og úttekt á sjálfbærni Íslands í ákveðnum geirum.“

Mynd: Viðar Helgason hjá Íslenska Orkuklasanum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ríkharður Ibsen hjá GRP og Ari Kristinn Jónsson rektor HR

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    96 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fyrirtæki og þjónusta horfin eftir 40 ára kvótakerfi

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?