Mynd: Viðar Helgason hjá Íslenska Orkuklasanum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ríkharður Ibsen hjá GRP og Ari Kristinn Jónsson rektor HR
- Undirbúningur úttekta á sjálfbærni Íslands; úttekt á orkukerfi Íslendinga, landbúnaðarkerfi og sjávarútvegskerfi.
- Greining á tækifærum nýsköpunar í grænni tækni á Íslandi, t.d. í orkugeiranum og í sjávarútvegi.
- Aukið samstarf við Cornell í menntamálum og rannsóknum og frekari tengingar við háskólaumhverfið á Íslandi.
- Uppsetning á námskeiðum um græna orku og sjálfbærni tengt sérstöðu Íslands.
- Stuðla að samstarfi við alþjóðlega rannsóknarsjóði vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna tengdum loftlagsmálum, sjálfbærni og grænni orku.
- Setja upp sjálfbæra miðstöð endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi í samstarfi við Cornell og tengda aðila.
- Samstarf í markaðsmálum með áherslu á sérstöðu Íslands í orkumálum og sjálfbærni.
Samstarfsverkefnið er vistað hjá Orkuklasanum en sérstök verkefnisstjórn hefur umsjón með verkefninu undir forystu Háskólans í Reykjavík.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: „Við höfum átt gott samstarf við Cornell háskóla á undanförnum árum og með þessum samningi þá römmum við það samstarf nánar inn til næstu fjögurra ára, með aðkomu Háskólans í Reykjavík, Orkuklasans og GRP. Í samstarfinu felast fjölmörg tækifæri á sviði nýsköpunar, orku, sjálfbærni og loftlagsmála og má þar nefna greiningu á tækifærum nýsköpunar í grænni tækni á Íslandi og úttekt á sjálfbærni Íslands í ákveðnum geirum.“
Umræða