• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 9. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skýrsla um dánaraðstoð lögð fyrir Alþingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um dánaraðstoð.  Í skýrslunni er m.a. fjallað um þróun lagaramma í löndum þar sem dánaraðstoð er leyfð, um tíðni, ástæður og skilyrði dánaraðstoðar í þeim löndum og hver reynslan hefur verið. Einnig er reifuð opinber umræða um dánaraðstoð í nokkrum löndum þar sem dánaraðstoð er ekki leyfð og um mögulegar lagabreytingar hvað það varðar, einkum hjá hinum Norðurlandaþjóðunum, í Þýskalandi og Kanada. Skýrslan er lögð fram í samræmi við beiðni þingmanna þar að lútandi.
Með skýrslunni er leitast við að draga saman upplýsingar um þetta efni og setja þær fram á hlutlausan hátt. Ekki er tekin afstaða til þess hvort heimila eigi dánaraðstoð, heldur er skýrslunni ætlað að vera grundvöllur frekari umræðu um þessi efni. Fram kemur að eftir því sem næst verður komist sé ekkert hinna Norðurlandanna að undirbúa lagabreytingar á þessu sviði.
Til að afmarka efnistök skýrslunnar er yfirhugtakinu dánaraðstoð skipt í fjögur meginundirhugtök sem byggjast á því um hve mikið inngrip er að ræða í líf sjúklings. Þetta eru líknarmeðferð, óbein dánaraðstoð, læknisaðstoð við sjálfsvíg og loks bein dánaraðstoð. Ekki er sjálfgefið að fella líknarmeðferð hér undir en í skýrslunni er það gert með hliðsjón af rétti sjúklings til að hafna meðferð. Um þetta er m.a. fjallað í klínískum leiðbeiningum Landspítala (kafli 8.2 Ósk um að flýta dauða).

Viðhorfskannanir

Í skýrslubeiðninni til heilbrigðisráðherra er óskað eftir umfjöllun um hvort tækt sé að gera viðhorfskönnun meðal heilbrigðisstarfsmanna um afstöðu þeirra til dánaraðstoðar, annars vegar hvort starfsmenn telji dánaraðstoð vera réttlætanlega í ákveðnum tilfellum og hins vegar hvort þeir væru tilbúnir að verða við slíkri ósk að uppfylltum skilyrðum og að því gefnu að það samræmdist íslenskum lögum. Í skýrslunni er slík könnun talin möguleg og jafnframt bent á að hugsanlega þyrfti einnig að kanna viðhorf almennings í þessu sambandi.

  • Skýrsla heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?