• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lilja skipar Pál Magnússon sem ráðuneytisstjóra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Nýr ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti

Páll Magnússon skipaður í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Ákveðið hefur verið að skipa Pál Magnússon í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Skipað er í embættið til fimm ára frá og með 1. desember nk. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti Lilju Daggar Alfreðs­dótt­ur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins.
Páll hefur fjölþætta menntun og reynslu af stjórnunarstörfum hjá hinu opinbera. Hann lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með BA-gráðu í guðfræði frá sama skóla. Frá árinu 2006 hefur hann starfað sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarritari hjá Kópavogsbæ, stýrt umbótum á stjórnsýslu bæjarins og m.a. haft forgöngu um innleiðingu gæðakerfis.
Hann starfaði áður í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu um sjö ára skeið, sem aðstoðarmaður ráðherra. Páll sat í stjórn Landsvirkjunar frá árinu 2007 til 2011, þar af sem formaður frá 2007 til 2008, var varaformaður útvarpsráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. frá 2003 til 2008. Hann var stjórnarformaður Fjárfestingastofu Íslands frá 1999 til 2006 og á sama tímabili varamaður í stjórn Norræna fjárfestingabankans (NIB). Á árunum 1990-1998 var hann varabæjarfulltrúi í Kópavogi og varaþingmaður frá 1999 til 2007.
Páll hefur talsvert sinnt málefnum barna, m.a. með innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá Kópavogsbæ, en það verkefni hefur leitt til samstarfs bæjarins við UNICEF – barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur setið í stjórnum Vímulausrar æsku, Umhyggju – félags langveikra barna og Sjónarhóls – ráðgjafarmiðstöðvar.
Þrettán sóttu um embættið og mat hæfnisnefnd fjóra umsækjendur mjög hæfa til þess að gegna því. Í kjölfarið boðaði ráðherra þá í viðtal, þar sem ítarlega var farið ofan í einstaka þætti starfsins og sýn umsækjenda. Var það mat ráðherra, að Páll Magnússon væri hæfastur umsækjenda til að stýra ráðuneytinu næstu fimm árin og leiða það umbótastarf sem er í farvatninu. Það miðar að því að efla mennta- og menningarmálaráðuneytið, bæta verkferla og starfshætti svo meðferð mála verði eins skilvirk og frekast er unnt.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?