Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til verkefna sem snúa að því að vinna gegn fíknisjúkdómum. Í ár verður sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem vinna gegn ópíóíðafíkn.
Auglýst er eftir umsóknum frá frjálsum félagasamtökum um styrki til afmarkaðra verkefna sem hafa það markmið að vinna gegn fíknisjúkdómum með áherslu á ópíóíðafíkn. Styrkupphæð til hvers verkefnis getur verið allt að 10 milljónir en alls eru 30 milljónir til úthlutunar.
Tilgangur styrkveitingar er að styðja við verkefni á sviði heilsueflingar og forvarna sem vinna gegn fíknisjúkdómum með áherslu á ópíóíðafíkn. Þar með talið eru verkefni tengd skaðaminnkun og snemmtækum inngripum.
Mat á styrkhæfni byggir á að verkefnin byggi á faglegum grunni, hafi skýr raunhæf markmið tengd því að vinna gegn fíknisjúkdómum með áherslu á ópíóíðafíkn, hafi skýrt upphaf og endi og árangur þeirra sé metinn.
Í umsókninni þarf að koma fram:
- Upplýsingar um starfsemi og meginmarkmið félagasamtaka.
- Nákvæm lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
- Rökstuðningur fyrir því hvernig verkefninu er ætlað að vinna gegn fíknisjúkdómum með áherslu á ópíóíðafíkn.
- Upplýsingar um framkvæmd árangursmats.
- Tíma- og verkáætlun.
- Kostnaðaráætlun.
- Upplýsingar um samstarfsaðila ef við á.
- Upplýsingar um aðra styrki sem fengist hafa til verkefnisins.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2023. Styrkir verða veittir í desember 2023.
Umsóknir með umbeðnum upplýsingum skulu sendar á hrn@hrn.is
Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.
Ekki verður tekið við umsóknum um rekstrarstyrki.