Bílk valt á Fríkirkjuvegi í miðborg Reykjavíkur eftir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ríkisútvarpsins sem birti fréttina fyrst, voru erlendir ferðamenn í bílnum, sem blinduðust af lágsól og óku framan á bifreið sem var ekið út úr stæði við Hallargarðinn með þeim afleiðingum að bíllinn valt á hvolf.
Bílstjóri og farþegi komust út úr brotna framrúðu, lítið slösuð.
Umræða