Á vef íbúa í Garðabæ er varað við þeirri hættu sem að fylgir því að sjórinn er nú ísilagður og vitnað í atvik sem að átti sér stað fyrir 39 árum er tveir drengir létu lífið eftir að hafa fallið niður um ísinn. Aðvörunin hljóðar þannig og á vel við í dag :
,,Kæru foreldrar og forráðamenn barna. Fyrir 39 árum var ég ásamt fullt af krökkum úr hverfinu á renna mér á sleða í brekkunni heima og fór yngri bróðir minn með vini sínum niður í fjöru en fjörðurinn var þá ísilagður. Þetta var eftir skóla á virkum degi og foreldrar okkar ekki komnir heim úr vinnu.
Bróðir minn og vinur hans féllu niður um vök á firðinum og tókst að bjarga hvorugum. Núna svona mörgum árum síðar er fjörðurinn bæði Kópavogs megin og Garðabæjar megin ísilagðir og hvítur snjór sem hylur hættuna á því að labba út á ísinn. Í Guðana bænum viljið þið fræða börn ykkar um þessa hættu sem nú er í okkar annars fallega firði.“
Þá segir móðir ,,Takk fyrir þessa góðu ábendingu! Sonur minn steig einmitt niður í gegnum ís á sjónum fyrir utan Sjálandsskóla í fyrra á leiðinni heim úr skólanum og varð sem betur fer bara blautur í fæturna.
Mér krossbrá að heyra að þeir vinirnir hefðu farið út á ísinn og hafði samband við skólastjórann sem talaði við öll börnin um þessa hættu og fylgdist svo með fjörunni eftir skóla. Ég tala auðvitað við mitt barn en skólinn nær til þeirra allra.“