• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samningur Skotfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar um aðstöðu á Álfsnesi er útrunninn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. febrúar 2021
in Afþreying, Fréttir, Innlent, Skotveiði, Veiði
A A
0

Samningur Skotfélags Reykjavíkur (SR), elsta íþróttafélags landsins, og Reykjavíkurborgar um aðstöðu á Álfsnesi er nú runninn út. Við höfum óskað eftir framlengingu til næstu ára og að svæðið komist inná framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar.

Á Álfsnesi er útiaðstaða félagsins þar sem æfingar og innlendar og alþjóðlegar keppnir eru haldnar, auk þess svæðið hefur verið notað til verklega skotprófa vegna hreindýraprófa Umhverfisstofnunar og skotvopnanámskeiða Ríkislögreglustjóra. Mikill fjöldi félagsmanna auk utanfélagsmanna notar svæðið að staðaldri og eru félagsmenn SR í fremsta flokki afreksíþróttafólks í skotfimi á landinu og hafa keppt á Ólympíuleikum, Heimsmeistara-, Heimsbikar- og Evrópumeistaramótum á síðustu árum.

Reiknað var með að svæði þetta á Álfsnesi yrði varanlegt skotsvæði Reykvíkinga til frambúðar. Leitað hafði verið að svæði í mörg ár þar til Álfsnesið fannst og ákveðið að eyða í það hundruðum milljóna til að gera það sem glæsilegast úr garði. Félagið hefur þó fullan skilning á því að nýta þurfi Álfsnesið að hluta undir Sundabraut, iðnaðarhúsnæði eða hvað annað sem þolir þann vindstyrk sem þar getur orðið. Ef finna þarf félaginu annað svæði innan borgarmarkanna til framtíðar leggjum við á það áherslu að félagið komi að þeirri leit nú þegar og að sú aðstaða sem félaginu stendur til boða verði að fullu uppbyggð áður en kemur að lokun á núverandi svæði þess á Álfsnesi.

Nú liggur fyrir ný skýrsla Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar um skotsvæðið þar sem settar eru fram mælingar á blý- og hávaða.

Blýmengun er þar talin töluverð þrátt fyrir að síðustu ár hafi nær eingöngu verið notuð stálhögl í skotum fyrir haglabyssur. Notkun á haglabyssuskotum sem innihalda blý verður alfarið bönnuð eftir áramótin. Samkvæmt upplýsingum innflytjenda þá hafa nánast eingöngu verið flutt inn haglaskot sem innihalda stál í stað blýs undanfarin 8-9 ár hið minnsta. Fyrstu árin eftir opnun svæðisins var framboð á stálhöglum afar lítið en það breyttist fljótlega og verðið á þeim var þá töuvert lægra heldur en á blýskotum. Í þeirri haglabyssugrein sem við stundum hvað mest, Ólympískt Skeet, eru stálhögl fyllilega hæf þar sem færin eru mjög stutt. Blýskot draga lengra og hafa betri broteiginleika en eftir því sækjast keppendur í öðrum haglagreinum frekar. Á stórmótum erlendis er notkun á blýskotum afar mikil og því gætu okkar afreksíþróttafólk þurft að æfa sig erlendis með blýskotum fyrir stórmótin.

Niðurstöður hljóðmengunarmælinga norðanmegin við Kollafjörðinn voru þannig að hæsta jafngildishljóðstig mældist 53dB við Skriðu/Stekk en lægsta við Móaberg, 44dB. Svæðið norðanmegin við Kollafjörðinn er samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar skilgreint sem iðnaðarsvæði (landbúnaðarsvæði) þar sem leyfilegt hámark hljóðmengunar er 70dB samkvæmt reglugerð nr.724/2008. Mæld hljóðmengun er því vel innan við leyfilegt hámark miðað við skilgreiningu landnýtingar fyrir svæðið.

Í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins er hins vegar ekki farið eftir skilgreiningu Aðalskipulags svæðisins og í staðinn er svæðið norðan Kollafjarðar skilgreint íbúðarhúsnæði á íbúðarsvæði! þar sem hávaðamörkin eru við 45dB! Reyndar eru hávaðamörk fyrir íbúðarhúsnæði á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum líka gefin upp í reglugerðinni, eða 55dB, og eru mælingar Heilbrigðiseftirlitsins innan við það hámark.

Tillögur Heilbrigðiseftirlitsins um opnunartíma starfsemi félagsins á Álfsnesi í drögum að nýju starfsleyfi eru unnar út frá þessum hljóðmælingum og viðmiðum fyrir íbúðarhúsnæði á íbúðarsvæði í staðinn fyrir iðnaðarsvæði. Gera þær ráð fyrir mun styttri opnunartíma en hefur hingað til hefur verið inni í starfsleyfi svæðisins en samkvæmt tillögunum er leyfð opnun á svæðinu kl. 10-19 mánudaga til fimmtudaga og um helgar er aðeins leyfð opnun á laugardögum frá kl. 10-16.

Í ljósi þess að við rekum íþróttafélag sem stundar m.a. Ólympískar skotgreinar, er okkur bráðnauðsynlegt að halda svæðinu opnu eins mikið og kostur er til að iðkendur okkar geti haldið áfram að stunda íþróttina og halda áfram þeim góða árangri sem þeir hafa sýnt innanlands og utan. Iðkendur eru alla jafna í vinnu til kl. 17-18 alla daga en eiga svo margir hverjir frí um helgar, þannig að nauðsynlegt er að lengja opnunartíma virka daga sem og um helgar til að þeir geti nýtt sér aðstöðuna. Í fyrra starfsleyfinu var heimil opnun til kl. 22 virka daga yfir sumartímann og til kl. 18 á laugardögum. Við höfðum þó ávallt aðeins opið til kl. 21 á virkum dögum og til kl.16 á laugardögum.

Einsog allir sem nálægt Álfsnesi koma er mjög algengt að loka þurfi svæðinu vegna hvassviðris. Vindhviður yfir 20 m/sek eru þar mjög algengar og höfum við t.d. haft þá reglu að ef vindstyrkur er yfir 15 m/sek þá lokum við. Við höfum haft heimild til að færa opnun yfir á sunnudag ef loka þarf á laugardegi.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur nú birt sína tillögu að starfsleyfi félagsins á vef sínum og er slóðin þessi : https://reykjavik.is/sites/default/files/sertaek_starfsleyfisskilyrdi_fyrir_skotfelag_reykjavikur.pdf

Við trúum því og treystum að Borgarstjórn sjái til þess að við Reykvíkingar sem stundum skotíþróttir höfum til þess aðstöðu til framtíðar. Á Álfsnesinu væri hægt að búa þannig um hnútana að friður skapist um svæðið t.d. mætti hækka allar manir verulega og byggja jafnvel yfir riffilvöllin svo öllum hávaðamörkum sé fylgt. Allt sem þarf er góður vilji og skilningur á mikilvægi þess að friður ríki um svæðið á 144 ára afmæli félagsins sem er þann 2.júní n.k.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?