Áður óþekkt hækkun stýrivaxta mun hafa bein og skaðleg áhrif á launafólk, að sögn framkvæmdastjóra Evrópusamtaka verkalýðsfélaga (ETUC).
Seðlabanki Evrópu hefur tilkynnt að vextir muni hækka á 8. febrúar og verði stýrivextir þá 2,5%. Frekari hækkanir eru boðaðar í marsmánuði.
Hækkanir þessar koma til þrátt fyrir að dregið hafi úr verðbólgu síðustu þrjá mánuði og hækkunin á evrusvæðinu í janúar hafi verið minni en spáð hafði verið.
Esther Lynch, framkvæmdastjóri ETUC, andmælir vaxtahækkunum evrópska seðlabankans og segir þær ekki taka á undirliggjandi áhrifaþáttum verðbólgu sem séu allir á framboðshlið hagkerfisins. „Þetta mun auka á erfiðleika launafólks þar sem láglaunafólk eyðir stærri hluta tekna sinna til kaupa á mat og orku en aðrir hópar,“ segir hún.
Nálgun bankans standist ekki skoðun. Hækkun vaxta auki líkur á efnahagssamdrætti sem muni koma þungt niður á heimilum og fyrirtækjum á evrusvæðinu. Hækkun vaxta auki hagnað banka en dragi úr getu opinberra kerfa til að létta afkomu verkafólks og bótaþega og fjárfestingum ríkissjóða í almannaþjónustu og græna hagkerfinu.
Lynch bætir við að leigjendur muni einnig finna fyrir þessum vaxtahækkunum þar sem aukinn kostnaður við húsnæðiskaup verði sóttur til þeirra á sama tíma og kaupmáttur ráðstöfunartekna fari minnkandi.