Mikill vatnselgur er nú víða á götum á höfuðborgarsvæðinu og eru vegfarendur hvattir til að fara varlega.
Fólk er sömuleiðis beðið um að huga að niðurföllum og hreinsa frá þeim, ekki síst niðurföll á svölum húsa en þau eiga það til að gleymast. Þetta er ítrekað hér, en á morgun er enn fremur spáð suðvestan 15-23 m/s og talsverðri rigningu.
Gefin hefur verið út gul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu á morgun, föstudag, og gildir hún frá kl. 12-19.
Umræða