Kynjajafnrétti á Íslandi: Hitamál var samþykkt á Alþingi 2.2. með miklum kynjahalla, þ.e. framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum. Heilar 87 ræður fluttar í annari umræðu, og 51 atkvæðagreiðsla var framkvæmd! Ein um hverja af 40 aðgerðum í áætluninni og breytingartillögur þar um að virðist. Ekki oft sem slíkt á sér stað á þingi
Niðurstaðan virðist samt 37 aðgerðir fyrir konur, en tvær eða þrjár fyrir karla, nú þegar frumvarpið er flutt í þriðja sinn.
Átján umsagnir eru sagðar hafa borist frá opinberum stofnunum og samtökum, flestar jákvæðar. Í engum þessara umsagna var gagnrýnt hversu lítt var hugað að hagsmunum drengja og karla í áætluninni. Hvergi er getið einu orði um neikvæðu umsagnirnar.
Í nefndaráliti og breytingartillögu segir að áætlunin geri ráð fyrir Jafnréttisnefnd karla, svo umræða um jafnréttismál nái til allra hópa og taldi meirihlutinn stöðu karla og drengja mikilvægan hluta þess (innst. karlmenn 55% landsmanna).
Hlutverk nefndar (aðgerð no. 10):
Vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja og þær áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál.

Nefnd skal leggja fram tillögur um hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af stöðu karla og drengja og um það hvernig frekar sé hægt að virkja karla til þátttöku á sviði jafnréttismála.
Starfshópur um karla og jafnrétti verði skipaður sem skoði sérstaklega hlutverk karla í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, gegn hvers kyns ofbeldi gegn konum og stúlkum, þar á meðal sem aðstandendur, vitni eða bandamenn sbr. álit Ríkislögreglustjóra um forvarnir.
Til að ná árangri í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi sé nauðsynlegt að virkja karla sem bandamenn.
Svo virðist sem allar aðerðirnar hafi verið samþykktar, með einhverjum breytingum.
Konur beita líkamlegu og andlegu ofbeldi, tálmunum ofl. – Samtök um Karlaathvarf

