Óskað var eftir aðstoð lögreglu að heimili í austurborginni um áttaleitið í gærkvöldi. Þangað var komin fyrrum maki og fór ekki á brott að beiðni húsráðanda. Fyrrum makinn var þó farinn á brott þegar lögreglu barð að garði.
Lögregla var kölluð að heimili í vesturbæ Reykjarvíkur um klukkan níu, en þar hafði kastað í kekki milli sambýlismaka og komið til handalögmála. Lögregla handtók ætlaðan geranda og var kallað eftir aðstoð fulltrúa barnaverndarnefndar og félagsþjónustu Reykjavíkurborgar ætluðum þolanda og börnum þeirra til aðstoðar.
Laust fyrir klukkan níu hafði lögregla afskipti af ölvuðum manni til trafala í Breiðholtinu. Maðurinn lét sér segjast eftir afskipti lögreglu og hélt heim á leið.
Lögregla stöðvaði för tveggja ökumanna í austurborginni þar sem þeir voru grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þvagpróf beggja gaf svörun um neyslu ólöglegra ávana og fíkniefna og var því tekið af þeim blóðsýni í þágu rannsóknar málanna. Þar að auki fannst eitthvað magna fíkniefna og reiðufé fannst við leit í bifreiðum þeirra. Málin eru í rannsókn lögreglu. Um klukkan tíu fór lögregla að vettvangi búðarhnupls í Breiðholti. Sakborningur var laus að skýrslutöku lokinni, en vörunum var skilað.
Annar ökumaður var stöðvaður í Hafnarfirði um klukkan tíu, einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var laus að sýnatöku lokinni. Lögregla fór að heimili í miðborginni um klukkan hálf ellefu. Þar höfðu fjórmenningar hreiðrað um sig í þvottahúsi í sameign hússins. Lögregla vísaði fjórmenningunum á dyr og benti þeim á úrræði Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa.
Laust fyrir miðnætti var óskað eftir aðstoð lögreglu að heimili í Hafnarfirði vegna manns sem gengi þar berserksgang. Lögregla fór að vettvangi og er maðurinn grunaður um að hafa meðal annars lagt hendur á maka sinn og brotið húsmuni í æðiskastinu. Hann var handtekinn og kom rannsóknarlögreglumaður á vettvang til þess að taka við rannsókn málsins. Einnig kom fulltrúa barnaverndarnefndar að vettvangi til aðstoðar börnum og þolanda. Maðurinn var vistaður í fangageymslum lögreglu og verður hann yfirheyrður með morgninum.
Á fjórða tímanum í nótt hafði lögregla afskipti af ökumanni í austurborginni. Sá reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og var því handtekinn og færður til sýnatöku á lögreglustöð. Meðan lögreglumenn voru við vinnu þess máls veittu þeir annarri bifreið athygli sem hafði verið lagt skammt frá þeim. En sú bifreið hafði verið eftirlýst stolinn. Lögregla bifreiðina í sína vörslu og handtók þremenninganna sem grunaðir erum um aðild að stuldinum. Þremenningarnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins, en ökumaðurinn sem lögregla hafði í upphafi afskipti af var laus að sýnatöku lokinni.
Lögregla sinnti einnig nokkrum hávaðakvörtunum vegna samkvæmishávaða víðsvegar um borgina.