• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 31. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Öll él birtir upp um síðir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. apríl 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Nú skulum við standa vörð um heimilin í landinu, því án þeirra erum við sannarlega ekkert

Öll él birtir upp um síðir
Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi Miðflokksins

Á tímum sem þessum er mikilvægt að við stöndum þétt  saman og snúum bökum saman.
Þó með minnst tveggja metra millibili.
Öll él birtir upp um síðir og á það sérstaklega vel við nú, þegar vorið er handan við hornið og sumarið framundan.
Það eru forréttindi að búa í landinu okkar á svona tímum, hér er fámennt og góðmennt og ekki verður betur séð en að allir séu að gera sitt besta.
Því fólki sem stendur í víglínunni þessa dagana sendum við kærar þakkir.
Það fólk leynist víða, það tekur á móti okkur á sjúkrahúsum, afgreiðir okkur í verslunum, tekur á móti börnunum okkar, heldur veitukerfum okkar gangandi og svo mætti lengi telja.
Við hin erum komin með mottó, Ég hlýði Víði.
Það er nefnilega svo að þótt margar séu skoðanirnar, þá er farsælast að fara í einu og öllu eftir leiðbeiningum okkar hæfasta fólks sem fundar með okkur alla daga kl. 14.
Þar er þekkingin.
Á sama tíma er hugur okkar hjá þeim sem þessi vágestur fellir og fjölskyldum þeirra.
Þetta eru sannarlega óvenjulegir tímar svo ekki sé meira sagt.
Það skiptir öllu máli hvernig tekið er á málum við aðstæður sem þessar.
Margt jákvætt hefur komið fram nú þegar, lánastofnanir bjóða upp á frystingu lána hjá þeim sem verða fyrir tekjumissi, borgarstjórn leggur í  aðgerðir með stuðningi allra flokka, ríkisstjórnin leggur í aðgerðir með stuðningi allra flokka og fleira mætti telja til.
Verði frekari aðgerða þörf af hálfu hvort sem er borgarstjórnar, sveitafélaga almennt eða ríkisstjórnar treystum við því að  þar verði engin breyting á.
Hér er mikilvægt að skilja engan eftir.
Við lærðum margt á hruninu svonefnda og það helst að nú skulum við gera hlutina öðruvísi.
Allt öðruvísi.
Nú skulum við gera hlutina með þeim hætti að ekki þurfi 110 ára ríkisleynd vegna ,,fá að lifa lista´´ og ,,dauðalista´´.
Slík vinnubrögð eru ekki í boði í þetta sinn.
Það er gott mál að standa vörð um fyrirtækin okkar sem við getum ekki án verið, verja þannig þúsundir starfa og tryggja hraða endurheimt þegar ástandinu linnir.
En við megum ekki gleyma fólkinu okkar.
Nú skulum við standa vörð um heimilin í landinu, því án þeirra erum við sannarlega ekkert.
Gerum það að skýlausri kröfu að engin verði skilin eftir í þetta sinn.
Það gerum við best með kröfu um almennar aðgerðir því þær koma öllum til góða, ekki bara útvöldum.
Hlýjar kveðjur til ykkar allra.
 
Höfundur:  Baldur Borgþórsson, Varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík                                                                                                                                            
Greinin birtist í Grafarholtsblaðinu þann 1.apríl 2020

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Alþingismanni hótað

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Málþóf stjórnarandstöðunnar enn á ný vegna sérhagsmuna

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Samráð: Veigamiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu kynntar

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?