,,RÚV ákvað að gefa mér 10% þegar ég er að mælast með um 45% alls staðar annars staðar“
Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi, lýsir því yfir að hann hafi efasemdir um niðurstöður Þjóðarpúls Gallup sem greint var fyrst frá í kvöldfréttum RÚV í kvöld. Könnunin er ótrúlega smá í sniðum miðað við að ríkisútvarpið stendur að henni. Með aðeins 600 svarendur og skilar allt annari niðurstöðu en t.d. risa stór könnun DV fyrir viku síðan, þegar 27.115 manns tóku þátt. Atkvæðin þar féllu þannig að sitjandi forseti, hlaut 13.356 atkvæði eða 49 prósent og Guðmundur Franklín Jónsson fékk 12.010 atkvæði, eða 44%. Alls 374 ætluðu að skila auðu og 347 ætluðu að sitja heima. Þá voru 1375 óákveðnir (5.04%)
Rúv gerði einnig könnun í síðustu kosningabaráttu og þá var útkoman sú að Halla Tómasdóttir fékk 7,5% í könnun RÚV en niðurstaðan í kosningu varð allt önnur.
Í könnun RÚV nú, mælist Guðni Th. Jóhannesson með 90,4% fylgi á RÚV en Guðmundur Franklín Jónsson með 9,6%. Guðmundur Franklín hefur mælst með mun meira fylgi í könnunum Bylgjunnar, Útvarps Sögu og eins og áður segir á DV.
Guðmundur Franklín hefur litlar áhyggjur af könnunni og virðist ekki telja hana marktæka og segir á Facebook:
,,Nei sko… RÚV var að gera könnun og ákvað að gefa mér 10% þegar ég er að mælast með um 45% alls staðar annars staðar.
Það er ekki skrýtið að Efstaleitið skjálfi þegar ég hef lýst því ítrekað yfir að ég vilji taka þessa ESB áróðursstofnun af auglýsingamarkaði.
Ég minni á að Halla var að „mælast“ með 7,5% í RÚV-gallup könnuninni á sama degi síðast og við munum nú öll hvernig það fór.
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=3211973332157902&id=100000358011569