Leki kom að bát á Faxaflóa, um sex sjómílum norðvestur af Gróttu, í gærkvöld. Einn var um borð í bátnum og kallaði hann sjálfur eftir aðstoð. Brugðist var við á hæsta forgangi, bátar björgunarsveita úr Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík voru kallaðir út og þyrla Landhelgisgæslunnar sömuleiðis.
Viggó M. Sigurðsson, starfsmaður á bakvakt aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar, segir í viðtali við Rúv, að um 40 mínútum eftir að útkall barst hafi fyrstu viðbragðsaðilar verið mættir á svæðið. Þá hafi báturinn verið farinn að halla töluvert og sjór flætt inn. Skipverjinn var með skerta meðvitund þegar viðbragðsaðila bar að garði. „Þá fara sigmenn um borð og maðurinn er hífður upp í þyrlu og tekin ákvörðun um að fara með hann upp á spítala og að Landsbjörg skyldi draga bátinn til hafnar,“
Tókst að þétta lekann og draga bátinn í land
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir aðgerðir björgunarsveitar hafa tekið um fimm klukkustundir. „Björgunarskipið Jóhannes Briem og björgunarbátarnir Stefnir, Sjöfn og Fiskaklettur voru kallaðir út á fyrsta forgangi og þeir fóru þarna út að bátnum.“
„Það voru settar dælur um borð og byrjað að dæla úr bátnum og þegar búið var að dæla talsvert úr bátnum var hægt að komast að til að þétta lekann sem tókst. Björgunarskipið Jóhanes Briem dró hann svo til hafnar þar sem hann var kominn rétt fyrir klukkan þrjú í nótt,“ segir Jón Þór.