Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins segir gagnrýni á orð þingmanns síns í Kastljósi ,,sýna einbeittan vilja til að snúa út úr og forðast eðlilega umræðu. Hann segir viðbrögð Framsóknarmanna í borgarstjórn sérkennileg og vandræðaleg.“

,,Þegar ég skoða umfjöllun fjölmiðla og samfélagsmiðla eftir gærdaginn sýnast mér ummæli Snorra Mássonar, hins unga og efnilega þingmanns Miðflokksins, í Kastljósi í fyrrakvöld hafa vakið talsverða athygli.
Þó hefur reynst erfitt að henda reiður á því hvað af því sem hann sagði kallaði á þessi viðbrögð. Mest virðist lagt út frá einhverju sem hann sagði alls ekki. Kaldhæðnislegt er að í hinum ofsafengnu viðbrögðum raungerist einmitt það sem Snorri reyndi að vara við í umræddu viðtali.
Í stað þess að ræða málflutning hans (og gagnrýna) birtist einbeittur vilji til að snúa út úr og forðast eðlilega umræðu. Þess í stað eru athugasemdir Snorra málaðar upp sem „hatur“ eða jafnvel hvatning til ofbeldis.
Ef til vill er ástæða heiftarinnar sem nú birtist sú að ljóst er að Snorri bognar ekki undan þöggunartilburðum.
Sum viðbrögðin eru einstaklega sérkennileg og hreinlega vandræðaleg, t.d. örvæntingarráð borgarfulltrúa framsóknarmanna.
Sá var til skamms tíma borgarstjóri og horfir nú á flokk sinn minnka dag frá degi. Í örvæntingu sinni lagði hann til að borgarstjórn samþykki afbrigði svo borgarfulltrúar gætu ályktað um að þingmaður sem var í viðtalsþætti kvöldið áður ætti ekki að fá að tjá (meinta) skoðun sína.
Snorri, sem er hallur undir raunverulegt frjálslyndi (en ekki eitthvað‘ nýtt gerræðislegt afbrigði þeirrar góðu hugsjónar), er sakaður um að „afneita tilvist“ fólks þótt slíkt hafi hann aldrei gert. Eins og allt eðlilegt fólk hefur hann líka óbeit á ofbeldi, eins og kom reyndar skýrt og ítrekað fram í máli hans í Kastljóssþættinum.
Oft eru mál blásin upp í ákveðnum tilgangi en ef hugmyndin er að banna þingmanninum Snorra Mássyni að viðra skoðanir sínar og ræða á opinberum vettvangi, er rétt að stíga fast til jarðar.
Frjáls tjáning er grundvallaratriði í okkar samfélagi og rétturinn til að skiptast á skoðunum sömuleiðis. Á þeim rétti hafa framfarir og grundvallarréttindi borgaranna byggst, ekki hvað síst minnihlutahópa.
Mitt mat, eftir að hafa verið nokkuð lengi í þessum bransa er að við þurfum fleiri þingmenn sem þora meðan aðrir þegja.“ Segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins