.
„Hvernig litist þér nú á að ég færi að kenna þér að ríða en væri hreinn sveinn en hefði lesið mér hellings til um kynlíf?”
Ung stúlka í Háskólanum segir farir sínar og hennar hóps ekki sléttar, eftir að hafa heimsótt Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra, í utanríkisráðuneytið á dögunum. Hún deilir upplifun sinni af málinu á Twitter:
,,Fyrir þremur til fjórum vikum átti ég í svo ótrúlega absúrd orðaskiptum við utanríkisráðherra og hef verið svo hugsi yfir því síðan. Ég fór með samnemendum mínum í vísó í Utanríkisráðuneytið og ráðherra hélt sjálfur kynningu og svo eftir á mynduðust umræður og bara stuð.
Á einhverjum tímapunkti kemur svo háskólinn til tals og þá fer okkar maður að tala um hvað Háskólinn þurfi að nýta sér meira fólk í atvinnulífinu svo nemendur séu betur undirbúnir fyrir þá vinnu sem þau stefna á og þá svara ég einhverju á þá leið að það sé nú ekki hlutverk háskóla að framleiði starfskrafta fyrir atvinnulífið og það býður í raun upp á stöðnun í samfélaginu að ætla móta háskólamenntun eftir þörfum atvinnulífsins á tilteknum tíma.
Þekking sem verður til innan háskólans leiðir af sér framþróun í samfélaginu og jarí jarí. Basically bara hugmyndafræðilegt clash um hlutverk háskóla.
ALLAVEGA maðurinn svarar þessum rökum mínum með því að taka dæmi og segir: „Hvernig litist þér nú á að ég færi að kenna þér að ríða en væri hreinn sveinn en hefði lesið mér hellings til um kynlíf?” Til að byrja með er þetta náttúrlega bara óviðeigandi, frekar slísí. En svo er þetta líka birtingarmynd einhvers miklu stærra.
Konur eru fyrst og fremst metnar út frá því að þær séu konur, hversu ríðanlegar þær séu, hversu sætar þér séu og það er á þessum stað sem við erum komin svo ótrúleg stutt í feminískri baráttu. Þetta var ekki bara sagt til að slá mig útaf laginu heldur til að smána. Það þarf vart að taka fram að hann hefði aldrei svarað KK nemenda með þessum hætti Hann stóð sem ráðherra í sínu eigin ráðuneyti fyrir framan hóp af háskólanemum og valdaójafnvægið er svo gígantískt og hann lék sér að því.
Langaði held ég aðallega að kasta þessu frá mér því með því að gera það ekki finnst mér ég vera að segja að það sé bara í lagi að svona hegðun viðgangist sem það er auðvitað alls ekki. Og svo er ég svo ótrúlega þreytt á að karlar sem tali svona við konur fái að sitja á þingi kjörtímabil eftir kjörtímabil. Fannst svo leiðinlegt eftir á að hafa ekki brugðist öðruvísi við en að flissa vandræðalega því það er ALLTAF það sem maður gerir í svona aðstæðum en núna er þetta komið út.“ Segir Alexandra Ýr.
Ég fór á svo frábært málþing á Kynjaþingi í gær þar sem konur í stjórnmálum ræddu m.a. hvað einkenndi orðræðu gagnvart konum í pólitík á Íslandi og þetta ýtti svo mikið á einhverja hnappa hjá mér og lét mig langa til að tjá mig um atvik sem ég hafði ekki ætlað að tjá mig um
— Alexandra Ýr (@alexandravanerv) November 3, 2019