Hugleiðingar veðurfræðings
Víðáttumikil lægð suður af landinu beinir til okkar norðaustlægri átt í dag. Víða kaldi eða strekkingur, en hægari norðaustantil. Dálítil slydda á Vestfjörðum og súld fyrir norðan, en bjart veður sunnan heiða fyrripart dags. Þar þykknar upp síðdegis og fer að rigna undir kvöld.
Áfram norðaustlæg átt á morgun en víða hægari vindur. Dálitlar skúrir eða slydduél um landið norðan- og austanvert, en skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og úrkomulítið. Hiti 1 til 8 stig að deginum, mildast syðst.
Veðurhorfur á landinu
Gengur í norðaustan 8-15 m/s, en hægari um landið norðaustanvert. Dálítil slydda á Vestfjörðum og súld fyrir norðan, annars úrkomulítið, en fer að rigna sunnanlands undir kvöld.
Norðaustan og norðan 3-10 á morgun og dálitlar skúrir eða slydduél, en skýjað með köflum og þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Hiti 1 til 8 stig að deginum, mildast syðst. Spá gerð: 03.11.2025 07:36. Gildir til: 05.11.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðaustan og norðan 5-13 m/s og dálitlar skúrir eða slydduél, en skýjað með köflum og úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Norðaustan 3-10 og stöku él, en þurrt að mestu um landið sunnan- og vestanvert. Heldur kólnandi.
Á fimmtudag:
Austan 10-15 við suðurströndina og lítilsháttar væta, annars hægari vindur, skýjað og úrkomulítið. Hiti kringum frostmark.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðaustlæg átt og dálítil él á Austurlandi, en yfirleitt bjart um landið vestanvert. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Spá gerð: 02.11.2025 20:30. Gildir til: 09.11.2025 12:00.

