Fjögurra og eins árs gamlar stúlkur eru lífshættulega slasaðar
Móðirin var ákærð fyrir morð og tilraun til morða. Atvikið í Tromsø í gærkvöld er nú rannsakað sem sakamál. Móðirin og sjö ára stúlka eru nú látin og tvö börn eru á sjúkrahúsi með lífshættulega áverka.
Málið sem var til rannsóknar í gær hefur breyst í sakamálarannsókn. Mál móðurinnar vegna morðs og tilraunar til morða fór í það ferli í gær, segir Anita Hermandsen, yfirmaður lögreglustöðvarinnar í Tromsö. Tvær af stúlkunum sem fundust í sjónum fyrir utan Tromsö í gær komu á ríkissjúkrahúsið í Ósló snemma í morgun. Stúlkurnar tvær eru fjögurra og eins árs gamlar og eru lífshættulega slasaðar. Sjö ára stúlka lést í gærkvöld. Í morgun kom svo tilkynning frá sjúkrahúsinu í Tromsö um að móðirin sem er á þrítugsaldri hafi einnig látist seint í gærkvöld.
Allar fjórar eru upphaflega frá Súdan og hafa tímabundið dvalarleyfi í Noregi. Faðir barnanna kom til Noregs árið 2015 og móðirin kom árið 2017 eftir að hafa sótt um að sameinast fjölskyldunni. Mál tengd fjölskyldunni hafa ekki komið inn á borð lögreglu áður.
,,Það er mikilvægt að benda á að lögreglurannsókn er enn á frumstigi. Við erum að vinna að nokkrum tilgátum. Ein af þeim er að móðirin kann að hafa valdið öðru barninu bana og valdið hinum börnunum lífshættulegum áverkum,“ segir Hermansen og við höldum áfram að kanna alla möguleika.
Lögreglan getur ekki útilokað að það séu fleiri sem eru viðriðnir málið en hefur engar upplýsingar um það á þessum stigum.
Faðirinn er nú í áfallameðferð og hefur stöðu vitnis í málinu. Hann var sóttur heim til sín og bauðst hann til að aðstoða lögreglu, við yfirheyrslu í gærkvöld. Lögreglan hefur ekki tjáð sig um hvar hann var þegar atvikið átti sér stað. ,,Við getum ekki farið nánar út í skýringar hans, nema að staða hans er vitni, segir Gøril Lund, lögfræðingur lögreglunnar.
Fann barnavagn og stígvél við sjóinn
Lögreglu var tilkynnt af vegfarendum í gækvöld um ummerki sem voru niður við sjó. Við nánari skoðun kom í ljós að við vatnið fundust nokkrir hlutir, þar á meðal stígvél og barnavagn. Þegar lögreglan kom á svæðið í Tromsö, fundust fjórir líflausir einstaklingar u.þ.b. þremur metrum frá sjávarborði, út í sjónumó. Skyndihjálp var veitt á staðnum áður en fólkið var flutt á sjúkrahús.
Eftir að hafa fundið börnin þrjú og konuna, tóku kafarar, björgunarlið og þyrla að leita að mögulegum einstaklingum í sjónum. Lögreglan hefur yfirheyrt 10 vitni sem eru allt frá vegfarendum til fólks sem tengist málinu.
Hefur þú áhuga á að hjálpa Fréttatímanum að vaxa og dafna?
Með því að styrkja Fréttatímann stuðlar þú að frjálsri og óháðri umfjöllun.