Stórt snjóflóð hefur stöðvað alla lestarumferð í Noregi á milli Narvik og Kiruna og hafa 750 manns verið innilokaðir í Beisfjord í Narvik eftir að skriðan lokaði eina veginum inn í þorpið
Óveður og mikil snjókoma undanfarna daga hefur leitt til nokkurra snjóflóða á svæðinu í gærdag. Á 14. tímanum var mikil snjókoma við veg númer 751 sem liggur milli Fagernes og Beisfjarðar í Narvik fylki.
Lars Erik Niia frá Beisfirði var á leið heim úr vinnu þegar hann uppgötvaði snjóflóðið. ,,Ég sá flóðið koma niður frá fjallshlíðinni. Það var dramatísk sjón að sjá, þaðan sem ég stóð. Sem betur fer stoppaði meginhluti skriðufalla lengra uppi í fjallinu, en fjallið er mjög bratt.“ Sagði hann við Nrk.
Þurfti að fara heim með bát
Til að komast heim fékk hann vin sinn til að sigla framhjá svæðinu á Olderneslandet á bát sínum. Núna er búið að fá skemmtiferðaskip á svæðið svo fólk geti komist inn og út úr Beisfirði. Í Beisfirði búa 750 manns, og í grunnskólanum eru yfir 100 nemendur. Lögregla óttast að það geti orðið fleiri snjóflóð og vegurinn verður ekki opnaður í dag og verður lokað eitthvað frameftir vikunni.
Hefur þú áhuga á að hjálpa Fréttatímanum að vaxa og dafna?
Með því að styrkja Fréttatímann stuðlar þú að frjálsri og óháðri umfjöllun.