• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sprengja sprakk í Leifsstöð

Vernd vegna fjöldaflótta lengd í fimm ár í stað þriggja að hámarki

Sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. desember 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm.

Í 4. mgr. 44. gr. laganna er kveðið á um að umsókn útlendings sem fellur undir 2. mgr. um alþjóðlega vernd megi leggja til hliðar í allt að þrjú ár frá því að umsækjandi fékk fyrst leyfi. Breytt ákvæði felur í sér að stjórnvöldum verði heimilt að leggja umsókn um vernd til hliðar í allt að fimm ár eða í tvö ár til viðbótar. Breytingin á við um þá sem þegar hafa fengið sameiginlega vernd á grundvelli fjöldaflótta sem og þá sem kunna að fá slíka vernd í framtíðinni.

Fjöldaflótti frá Úkraínu

Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu leiddi til  að umsóknum úkraínskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd á Íslandi og í Evrópu fjölgaði verulega. Í kjölfarið beittu íslensk stjórnvöld, samhliða aðildarríkjum Evrópusambandsins og samstarfsríkjum Schengen, Noregi, Sviss og Liechtenstein, heimild ráðherra skv. 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem fjallar um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta, í eitt ár. Þeir einstaklingar sem falla undir þetta ákvæði fá útgefið dvalarleyfi skv. 74. gr. útlendingalaga. Hér er einkum um að ræða mál úkraínskra ríkisborgara, sem voru búsettir í Úkraínu fyrir innrásina, og fjölskyldna þeirra.

Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið yfir í rúm tvö ár og sér ekki fyrir endann á átökum í landinu. Frá því stríðsátökin brutust út hefur fjöldi umsókna um vernd frá úkraínskum ríkisborgurum verið umtalsverður hér á landi. Árið 2022 fengu 2.315 einstaklingar sameiginlega vernd á grundvelli 44. gr. útlendingalaga og 1.556 á árinu 2023. Vegna þessa tók dómsmálaráðherra ákvörðun 1. febrúar 2023 um að framlengja gildistíma ákvörðunar ráðherra samkvæmt heimild 44. gr. laga um útlendinga um eitt ár, til og með 3. mars 2024. Hinn 22. febrúar 2024 ákvað ráðherra að framlengja gildistímann um ár til viðbótar, eða til og með 2. mars 2025.

Með þessari breytingu geta Úkraínumenn hér á landi því dvalist hér a.m.k. til mars árið 2027 án þess að taka þurfi umsóknir þeirra til skoðunar í einstaklingsbundinni efnismeðferð.

Sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta

Tilgangur verndarkerfisins er að veita einstaklingum tímabundna vernd gegn ofsóknum eða stríði. Sameiginlegri vernd vegna fjöldaflótta er ætlað sem viðbragð við tímabundnum aðstæðum þar sem hópur einstaklinga flýr afmarkað landsvæði og þarf á vernd að halda. Sameiginleg vernd er undantekning frá þeirri meginreglu að umsókn um alþjóðlega vernd skuli hljóta einstaklingsbundna efnismeðferð hjá stjórnvöldum. Mál vegna sameiginlegrar verndar eru frábrugðin að því leyti að slakað er á sönnunarkröfum og rannsóknarskyldu stjórnvalda. Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd í slíkum aðstæðum getur verið ófyrirsjáanlegur sem kallar á sveigjanlegar reglur og einfalt umsóknarferli.

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?