Áfram er í gildi óbreytt rýming á því svæði sem kynnt var fyrir áramót
- Óbreytt rýmingarsvæði á Seyðisfirði.
- Áfram í gildi hættustig almannavarna á Seyðisfirði.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórinn á Austurlandi ásamt vettvangsstjórn og ráðgjöfum fundaði í gærmorgun vegna hreinsunarstarfs á Seyðisfirði. Þar ganga yfir hlýindi og því verður ekki unnið að fullum krafti innan þess svæðis sem stóra skriðan féll á 18. desember síðastliðinn. Hreinsunar- og viðgerðarstarf verður unnið utan þess svæðis og búið í haginn vegna vinnu komandi viku. Þá er veðurútlit gott og má búast við að vinna fari af stað af fullum krafti í dag.
Þrátt fyrir að upptakasvæði skriðanna sé ekki innan rýmingarreits, þá er áréttað að þar getur verið hættulegt að fara um vegna lausra jarðlaga, skriðubrúna og sprungna sem hafa myndast.
Fylgst verður með aðstæðum, farið upp í Botnabrún og sprungur skoðaðar, og gerðar mælingar á hreyfingu jarðlaga. Engin hreyfing mældist í gærmorgun en hún hefur verið lítil sem engin undanfarna viku.
Áfram er í gildi óbreytt rýming á því svæði sem kynnt var fyrir áramót.
Þjónustumiðstöð almannavarna er opin í Herðubreið á Seyðisfirði í dag. Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sey@logreglan.is og hringja í 839-9931 utan opnunartíma.

Discussion about this post