Fyrrverandi framkvæmdastjóri Myndsmiðjunnar á Egilsstöðum hefur verið ákærður fyrir fjársvik og skjalafals. Honum er gefið að sök að hafa haft fé af viðskiptafélaga sínum og fleirum með að falsa skjöl og upplýsingar.
Samkvæmt ákæru lögreglustjóra á maðurinn að hafa blekkt viðskiptafélaga sinn til að lána Myndsmiðjunni alls 34 milljónir króna haustið 2020, vitandi að fyrirtækið gæti ekki staðið í skilum með það. Hann er sakaður um ranga upplýsingagjöf um viðskipti fyrirtækins með að hafa gefið þær skýringar að féð færi til kaupa á vörum erlendis frá sem yrðu endurseldar íslensku símafyrirtækjunum. Austurfrétt greindi fyrst frá.
Áður hafi hann verið búinn að fá viðskiptafélagann til að lána 10,5 milljónir til vörukaupa erlendis frá sem vilyrði væri fyrir kaupum á hérlendis. Hann hafi því ranglega haldið því fram að þörf væri á meira fé til að panta meira, meðal annars til sölu til Festis, móðurfélags raftækjaverslunarinnar Elko. Í ákæru segir að vörukaupin hafi aldrei átt sér stað.
Ákærði hafi síðan falsað kröfu í netbanka til að láta líta út fyrir að Myndsmiðjan ætti inni 25 milljóna kröfu á Festi. Krafan hafi verið notuð til að blekkja starfsmenn greiðslumiðlunarfyrirtækis til að lána Myndsmiðjunni þá upphæð og viðskiptafélagann til að ábyrgjast lánið. Myndsmiðjan fékk 20 milljónir þegar lánið var greitt út. Félag viðskiptafélagans gerði upp lánið fyrir 28,5 milljónir í apríl 2022. Myndsmiðjan var formlega úrskurðuð gjaldþrota 1. mars 2022.
Í þriðja lagi er framkvæmdastjórinn ásakaður um að hafa blekkt viðskiptafélaga sinn með að falsa skjáskot sem sýndu hærri stöðu á reikningum Myndsmiðjunnar heldur en raunin var. Hann hafi síðar falsað undirskriftir og tölvupósta frá stjórnendum viðskiptabanka fyrirtækisins og lögmanni þess. Tilgangurinn hafi verið að tryggja Myndsmiðjunni lengri greiðslufrest.
Viðskiptafélaginn hefur lagt fram einkaréttarkröfu upp á 73 milljónir króna. Ákæruvaldið fer fram á refsingu og greiðslu alls sakarkostnaðar. Málið var þingfest í héraðsdómi Austurlands í desember en málareksturinn heldur áfram á nýju ári.