• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áætlun um lokanir á vegum vegna veðurs 5. og 6. febrúar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ábendingar frá veðurfræðingi 4. feb. kl. 18:15 – Varað er við lélegu skyggni þegar lausamjöllin fer af stað í fyrramálið, víða SV-lands og austur með suðurströndinni. M.a. á Kjalarnesi, Suðurlandsvegi ofan Rvk sem og í efri byggðum Hbsv. Hlánar á láglendi neðan 200 m. og hætt er við flughálku. Hvessir enn frekar upp úr hádegi. 

Vegagerðin hefur sent frá sér áætlun um lokanir á vegum vegna veðurs 5. og 6. febrúar 2019.

Búast má við að eftirfarandi vegir lokist eða verði ófærir vegna veðurs þriðjudaginn 5. og miðvikudaginn 6. febrúar meðan veður sem spáð er gengur yfir.
Hvolsvöllur – Vík
Lokun kl. 12:00. 5. feb.
Líkleg opnun:  kl 04:00 6. feb.
Skeiðarársandur og Öræfasveit  (Núpsstaður-Höfn)
Lokun kl. 16:00 5. feb.
Líkleg opnun:  kl 10:00 6. feb.
Hellisheiði og Þrengsli
Lokun kl. 06:00 5. feb.
Líkleg opnun 05:00 6. feb.
Kjalarnes
Lokun kl. 07:00 5. feb.
Líkleg opnun 12:00
Mosfellsheiði
Lokun kl. 07:00 5. feb.
Líkleg opnun 05:00 6. feb.

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er víðast hvar á landinu, hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Kalt er í veðri norðanlands en hiti kominn um og yfir frostmark sunnanlands
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir eru á flestum stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálka eða hálkublettir á langflestum leiðum og skafrenningur er á Hellisheiði.
Vesturland: Hálka á flestum leiðum en snjóþekja og skafrenningur er á Vatnaleið og við Hafursfell. Skafrenningur er er einnig undir Hafnarfjalli og á Vestfjarðavegi í Dölum.
Vestfirðir: Víðast hvar hálka á vegum en þæfingsfærð er norður í Árneshrepp. Skafrenningur er á nokkrum fjallvegum og éljagangur á Ströndum.
Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum aðalleiðum og víða snjóþekja á útvegum.
Norðausturland: Hálka flestum vegum en éljagangur á Tjörnesi. Þungfært er á Hlíðarvegi milli Axlar og Eyvindarstaða.
Austurland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar. Snjókoma er í Breiðdal en éljagangur er á Fagradal.
Suðausturland: Hálka eða hálkublettir eru á vegum og einhver éljagangur.
Suðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Ábending til vegfarenda

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegi þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar.  Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?