• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eitt sýslumannsembætti í stað níu

Eitt sýslumannsembætti í stað níu

Frumvarp um sameinað embætti sýslumanns samþykkt á Alþingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi í gær. Með samþykkt frumvarpsins verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt öflugt embætti sýslumanns sem starfa mun um land allt.

„Við erum að færa sýslumannskerfið inn í nútímann. Þjónusta ríkisins á ekki að ráðast af póstnúmeri. Með einu sameinuðu embætti tryggjum við jafnræði, aukna skilvirkni og sterkari stjórnsýslu um allt land. Þetta er skýr pólitísk ákvörðun um að nýta betur sameiginlega fjármuni og setja hagsmuni almennings í forgang. Með þessum lögum fækkum við stofnunum um 5%,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Markmið lagasetningarinnar er m.a. að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu sýslumanns óháð búsetu, auka skilvirkni í rekstri og stjórnsýslu, stuðla að auknu framboði stafrænnar þjónustu og efla starfsemi embættisins á landsbyggðinni með fjölgun verkefna og starfa.

Eitt umdæmi og áhersla á þarfir íbúa

Frumvarpið kveður á um að landið verði eitt umdæmi og að starfsemin verði rekin með þeim hætti að þjónustan sé samræmd, skilvirk og í forgrunni fyrir almenning. Með samþykkt laganna verður embættið með 27 starfsstöðvar um allt land, sem tryggir áfram staðbundna þjónustu þrátt fyrir breytingar á stjórnkerfi sýslumannsembættanna.

Markmið með sameiningu eru skýr um framfarir, hagræðingu og að efla byggðir landsins.

Í frumvarpinu er hlutverki sýslumanns gerð greinargóð skil og áhersla lögð á að embættið sinni nútíma- og framtíðarþörfum í þágu allra landsmanna. Þar er lögð rík áhersla á að skipulag þjónustunnar taki mið af þörfum íbúa og að embættið stuðli að þróun og auknu aðgengi að opinberri þjónustu í gegnum stafrænar lausnir.

Undirbúningur innleiðingar hefst þegar í stað og nýtt embætti tekur formlega til starfa 1. janúar 2027.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hvessir og frost 5 til 15 stig

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?