Bjartviðri var á Höfuðborgarsvæðinu í dag þegar að þessi mynd var tekin af Bessastöðum. Spáð er norðaustan 5-13 m/s og éli í kvöld, en að það verði léttskýjað á S- og SV-landi. Hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun og bjart með köflum, en él á stöku stað. Hiti um eða yfir frostmarki sunnan heiða að deginum en 0 til 7 stiga frost annars staðar og kaldara í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðaustan 3-10 m/s. Léttskýjað á SV- og V-landi, en snjókoma A-lands og stöku él annars staðar. Frost 0 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Norðaustan 8-15 og snjókoma fram eftir degi SA-lands, annars hægari vindur og bjart veður, en skýjað og dálítil él á NA-landi. Áfram kalt í veðri.
Á föstudag:
Austanátt og víða bjartviðri, en lítilsháttar él SA-til á landinu. Frost 0 til 8 stig, kaldast NA-lands, en 0 til 5 stiga hiti syðst.
Á laugardag:
Austlæg átt og él á víð og dreif, en þurrt á V-verðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Suðaustanátt og él, en úrkomulítið N-til á landinu.
Umræða