• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

ORKAN Á EKKI AÐ VERA AUÐLIND Í ÞJÓÐAREIGN SEGIR RÁÐHERRA. HA?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. mars 2019
in Innlent, Viðskipti
A A
0

,,Hér hangir sitthvað á spýtunni sem snýr að einkavæðingu raforkugeirans. – Til að hægt sé að selja Landsvirkjun þarf fyrst að aðgreina Landsnet þar frá.“ 

Ögmundur Jónasson bendir á mjög áhugaverða hluti varðandi orkugeirann og hefur miklar áhyggjur af því að í gang sé kominn einkavæðingarkapall orkugeirans og að kaup almennings á Landsneti frá sjálfum sér sé hluti af þessum kapli. Hann fer yfir málið á heimasíðu sinni, ögmundur.is en hann telur að blikur séu á lofti varðandi sameign þjóðarinnar, orkuna og að í undirbúningi sé einkavæðing raforkugeirans.

Ögmundur Jónasson

,,Ég hvet alla, hvar í flokki sem þeir standa, að lesa viðtal við Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dóttur, ferðamála-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, sem birtist á mbl.is í lok síðustu viku.
Í fyrsta lagi segir hún að ríkisstjórnin hafi samþykkt að skattgreiðendur kaupi Landsnet af eigendum Landsnets sem að uppistöðu eru skattgreiðendur sjálfir. Hér er því um það að ræða að taka peninga úr einum vasa okkar til að setja í annan. Hér hangir sitthvað á spýtunni sem snýr að einkavæðingu raforkugeirans.
En svo það fari ekki á milli mála þá á Landsnet að sjálfsögðu að vera í eigu almennings framvegis sem hingað til. Það eiga orkuverin að vera einnig og að sjálfsögðu orkuauðlindirnar. Aldeilis ekki hefur mbl.is eftir ráherranum: “Þór­dís Kol­brún sagðist hafa heyrt af því að hóp­ur fólks sem ætlaði að berj­ast gegn samþykkt þriðja orkupakk­ans á Alþingi ætlaði að fara fram und­ir slag­orðinu „Okk­ar orka“ og sagðist hún túlka þau skila­boð sem svo að þessi hóp­ur teldi orku­auðlind­ina af sama meiði og fisk­inn í sjón­um, þ.e. í sam­eign þjóðar­inn­ar. Svo er ekki, sagði ráðherra, og lagði áherslu á að vatns­afl og jarðvarmi og nýt­ing­ar­rétt­ur af þeirri auðlind væri í hendi land­eig­enda.”
Landsvirkjun

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir sagði fleira í þessu upplýsandi/afhjúpandi viðtali við mbl.is: “Hún ræddi einnig um þriðja orkupakk­ann og sagði að þó að umræðan um hann hefði á stund­um „farið út um víðan völl“ væri það kost­ur að hún hefði orðið til þess að bent var á hvað fólst í fyrsta og öðrum orkupakk­an­um. „Orkupakk­arn­ir voru ekk­ert annað en markaðspakk­ar, og sá þriðji er það líka,“ sagði ráðherra …”
Því miður held ég að í gang sé kominn einkavæðingarkapall orkugeirans og að kaup almennings á Landsneti frá sjálfum sér sé hluti af þessum kapli.
Slíkur einkavæðingarkapall byrjar alltaf á að markaðsvæða allar einingar þeirrar starfsemi sem á að selja, skilgreina og aðgreina einstaka hluta hennar og gera þá þannig söluhæfa. Þegar það hefur verið gert ríður höggið og almenningur er sviptur eignum sínum. Til að hægt sé að selja Landsvirkjun þarf því fyrst að aðgreina Landsnet þar frá.  
Þótt Landsnet eigi að sjálfsögðu að vera eign almennings í gegnum almannafyrirtæki eins og nú er eða beint eins og stefnt er að, þá er brýnt að stöðva markaðs- og einkavæðingarferlið og færa jafnframt sjálfar orkuauðlindirnar undir almannaeign og almannastjórn eins tryggilega og nokkur kostur er. Sú vegferð sem við erum á gengur hins vegar í gagnstæða átt!
Tónn ráðherrans er vægast sagt óhugnanlegur og ég trúi því ekki að ríkisstjórn og Alþingi láti þessi sjónarmið verða ofan á. En þetta þurfum við að fá að vita – og það sem fyrst!“ Segir Ögmundur Jónasson á heimasíðu sinni.
Sjá fréttaumfjöllun mbl.is: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/28/hefja_vidraedur_um_kaup_a_landsneti/?fbclid=IwAR3K7kLLGC2RTt8bqz9sM5z8-I5bUHXLfeO414piPdzuBQ180qwSabs92RQ
https://www.fti.is/2019/03/05/samkeppni-i-vinnslu-heildsolu-og-smasolu-a-orkumarkadi-segir-fyrrum-formadur-kjararads-og-nu-formadur-landsvirkjunar/
https://www.fti.is/2019/03/02/landsvirkjun-hagnadur-14-milljardar-enn-eitt-metarid-i-orkuvinnslu-og-rekstrarafkomu/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?