• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fæðingarorlof verði lengt fyrir foreldra með fjölbura og vegna veikinda á meðgöngu

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra skrifar

Frumvarp sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. mars 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Drög að frumvarpi sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir meðal annars að ríkisstjórnin ætli að stöðva strax kjaragliðnun launa og lífeyris og stíga stór skref til að uppræta fátækt, auk þess að binda í lög að aldursviðbót á lífeyri öryrkja haldist ævilangt.

Í frumvarpsdrögunum eru þrjú meginatriði:

Miðað verði við hækkun launavísitölu

Örorku- og ellilífeyrisgreiðslur breytast árlega í samræmi við fjárlög. Hingað til hefur hækkunin tekið mið af launaþróun og verið samsett úr þróun fyrra árs og spá um efnahagshorfur fjárlagaársins.

Í frumvarpinu er hins vegar lagt til að árlegar breytingar á greiðslum almannatrygginga muni framvegis taka mið af hækkun launavísitölu. Lagt er til að samhliða verði tryggt að hækkunin verði aldrei minni en sú hækkun sem verður á verðlagi.

Þetta er gert til að stuðla að því að greiðslurnar fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði og tryggja að lífeyrisþegar dragist ekki aftur úr í kaupmætti. Hækkanirnar munu ná til allra þeirra sem fá greiðslur frá almannatryggingum.

Lagt til að ný aldursviðbót gildi til æviloka

Fyrir þau sem voru ung metin með örorku og hafa lítið eða ekkert getað tekið þátt á vinnumarkaði hefur 67 ára afmælisdagurinn slæm áhrif á stöðuna á bankabókinni. Þann dag fellur nefnilega svokölluð aldursviðbót á lífeyri öryrkja niður – og greiðslurnar lækka.

Í frumvarpinu er á hinn bóginn lagt til að ný aldursviðbót sem tekur gildi með breytingum sem verða á örorkulífeyriskerfinu í haust haldist ævilangt. Það þýðir að hún fellur ekki niður á 67 ára afmælisdaginn.

Rétt þjónusta á réttum tíma

Í frumvarpinu er einnig lagt til að þegar nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi í haust fái Tryggingastofnun það verkefni að safna tölfræðiupplýsingum um framvindu meðferðar og endurhæfingar hjá einstaklingum.

Markmiðið er að sjá til þess að haldið sé utan um slíkar upplýsingar miðlægt þannig að þær nýtist til að tryggja að einstaklingar fái rétta endurhæfingarþjónustu, á réttum stað og réttum tíma.

Sæti við borðið

„Ég á von á að breytingarnar varðandi launavísitöluna muni loks binda enda á kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris. Öryrkjar og aldraðir munu nú í fyrsta sinn fá ígildi þess að eiga sæti við kjaraborðið,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Með því að láta nýju aldursviðbótina gilda út ævina tökum við síðan sérstaklega utan um þau sem hafa frá unga aldri glímt við örorku og skert atvinnutækifæri – og tryggjum að þau fái áframhaldandi stuðning þegar þau færast af örorkulífeyri yfir á ellilífeyri. Þetta er hópur sem setið hefur eftir og ég vildi hlúa sérstaklega að.“

Umræða
Share64Tweet40
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Lögreglan leitar manns

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?